Kvennalið ÍBV í handbolta er komið í undanúrslit Íslandsmótsins þriðja árið í röð en Eyjakonur lögðu FH að velli í Hafnarfirði í kvöld, 19:21. ÍBV hafði því betur í rimmu liðanna, vann samanlagt 2:0. ÍBV mætir Val í undanúrslitum en Valur lagði Hauka að velli í rimmu liðanna, sömuleiðis 2:0. Liðin fá bæði góða hvíld núna en undanúrslitin hefjast ekki fyrr en miðvikudaginn 23. apríl. Fyrsti leikur ÍBV gegn Val fer fram á heimavelli Vals á Hlíðarenda en liðin mætast svo í öðrum leik liðanna í Eyjum föstudaginn 25. apríl. Í undanúrslitum þarf að vinna þrjá leiki til að komast í úrslitakeppnina.
Leikur í kvöld gegn FH var nokkuð jafn. ÍBV var reyndar ávallt skrefi á undan en FH-ingar neituðu að gefast upp og héldu í við ÍBV. Framan af fyrri hálfleik var reyndar jafnt á öllum tölum en segja má að ÍBV hafi lagt grunninn að sigrinum með góðum spretti í lok fyrri hálfleiks en staðan í hálfleik var 9:12 fyrir ÍBV. ÍBV hafði svo frumkvæði í seinni hálfleik, fyrir utan að FH náði að jafna 13:13 snemma í hálfleiknum og svo 16:16 um miðjan hálfleikinn. En lengst af var ÍBV með 2-3 marka forystu og náði 4 marka forystu undir lokin, 17:21 en FH skoraði síðustu tvö mörk leiksins og lagaði aðeins stöðuna. Dröfn Haraldsdóttir, markvörður ÍBV átti góðan leik í markinu en hún á einmitt afmæli í dag og fékk kærkomna afmælisgjöf með sigrinum.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 9/4, Telma Amado 5, Ester �?skarsdóttir 4, Díana Dögg Magnúsdóttir 2, Arna �?yrí �?lafsdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 15, Erla Rós Sigmarsdóttir 1.