Fundað var í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi hjá Ríkissáttasemjara í gær en Sjómannafélag Íslands fer með samningsumboð fyrir undirmenn Herjólfs á meðan Samtök atvinnulífsins semja fyrir hönd Eimskip. Haft er eftir Jónasi Garðssyni á
mbl.is að á fundinum hafi verið �??rúllað yfir stöðuna�?? án þess að neitt nýtt kæmi fram.
�?lafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips segir hins vegar að SA hafi lagt fram formlegt tilboð sem Jónas hafi umsvifalaust hafnað en hann situr einn við samningaborðið fyrir hönd áhafnarinnar og hefur Eimskip m.a. bent á að æskilegt væri að einn af undirmönnunum myndi sitja fundina.
�??Við höfum ítrekað kallað eftir því að fulltrúar áhafnar séu við borðið, þannig að þeir fái upplýsingar um tilboðin strax á sama tíma og hann. �?eir hafa ekki orðið við því, en við teljum að það myndi auðvelda allar samningaviðræður,�?? segir �?lafur í samtali við
mbl.is.
�?ar segir jafnframt að tilboðið sem Eimskip hafi lagt fram hafi m.a. snúið að dagvinnu undirmanna, sem yrði stytt frá því að vera milli 8 til 17 í 8 til 16. �?á hafi verið komið til móts við kröfur um álagsprósentu að sögn �?lafs.
�??Menn verða að koma til samningaborðsins með samningsvilja. Við vinnum að því hörðum höndum að leggja fram tilboð. Nú lítum við svo á að boltinn sé hjá Sjómannafélaginu að koma með gagntilboð,�?? sagði �?lafur.