Í gær, 15. apríl var þess minnst að 25 ár eru liðin frá hinu hræðilega slysi á Hillsborough leikvangi í Englandi þar sem 96 aðdáendur Liverpool tróðust undir í mannþrönginni og létust í einu versta slysi í sögu Englands og íþróttasögunni. Minningarathöfnin fór fram á heimavelli Liverpool, Anfield en mikið hefur verið fjallað um slysið og í kjölfar þess var reglum um leikvanga breytt og öryggi áhorfenda aukið. Slysið varð í undanúrslitaleik Liverpool og Nottingham Forrest, sem fram fór á hlutlausum velli, Hillsborough, heimavelli Sheffield Wednesday. Allt of mörgum stuðningsmönnum Liverpool var hleypt inn á afmarkað svæði í einni stúkunni en girðingar aðskildu áhorfendastúkur og völlinn og þrýstust áhorfendur að girðingunni með fyrrgreindum afleiðingum. Leikurinn var flautaður af strax á 6. mínútu og björgunaraðgerðir hófust.
Til að minnast þeirra 96 sem létust, var talan 96 búin til úr treflum ýmissa knattspyrnufélaga sem sýndu þannig stuðning við aðstandendur þeirra sem létu lífið í þessu hörmulega slysi. ÍBV lét ekki sitt eftir liggja en þeir �?lafur Jóhannesson og Hannes Sigurðsson, gallharðir Liverpoolmenn og meðlimir í knattspyrnuráði karla, sendu tvo trefla, sem voru innan um hundruði annarra á miðjum Anfield leikvanginum.