Frábær leikur, frábær stemmning, frábær sigur
Eyjamenn unnu sannfærandi sigur á Val í kvöld þegar liðin áttust við í fyrsta leik undanúrslitanna. Leikurinn fór fram í Eyjum fyrir framan tæplega 600 áhorfendur sem létu vel í sér heyra þannig að stemmningin varð meiriháttar. Eflaust hefur það hjálpað til í byrjun þegar Eyjamenn fóru hreinlega á kostum, komust í 6-1 þegar aðeins rúmar sjö mínútur voru búnar og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður voru Valsmenn bara búnir að skora fjögur mörk. �?eir náðu að saxa á forskotið en í hálfleik var staðan 16:13 fyrir ÍBV. Valsmenn minnkuðu muninn í tvö mörk en um miðjan hálfleikinn gáfu Eyjamenn aftur í og innsigluðu öruggan sigur, 32:28.
Magnús Stefánsson lék með ÍBV í kvöld og munaði um minna, ekki síst í varnarleiknum þar sem Magnús spilar stóra rullu. Fremstur meðal jafningja fór hins vegar Róbert Aron Hostert. �?að er engu líkara en hann geti skorað þegar hann vill en hann tók leikinn í raun og veru yfir um miðjan síðari hálfleikinn, raðaði inn mörkunum og endaði á því að skora rétt um þriðjung marka ÍBV eða tíu mörk alls. �?að var varla að finna veikan hlekk á ÍBV liðinu en leikur liðsins var reyndar nokkuð kaflaskiptur. �?að var þó aldrei meira en svo að maður hafði það aldrei á tilfinningunni að Valur væri að fara vinna leikinn því Eyjamenn höfðu leikinn í höndum sér allan tímann. �?ess má geta að Eyjamaðurinn Vignir Stefánsson í liði Vals, byrjaði á bekknum en kom inn á á 15. mínútu. Vignir átti mjög góðan leik í vinstra horninu og skoraði úr 5 ag 6 skotum sínum.
Liðin mætast að nýju á Hlíðarenda á fimmtudaginn klukkan 16:00. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit.
Mörk ÍBV: Róbert Aron Hostert 10, Guðni Ingvarsson 5, Agnar Smári Jónsson 5, Grétar Eyþórsson 4, Theodór Sigurbjörnsson 4/2, Magnús Stefánsson 3, Sindri Haraldsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 9/1, Henrik Eidsvaag 7.
Með greininni fylgir myndbandsviðtal við Arnar Pétursson, þjálfara ÍBV.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.