Gíslína bæjarlistamaður Vestmannaeyja
Gíslína Dögg Bjarkadóttir, myndlistamaður er bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2014. �?tnefningin fór fram í Kviku í dag en Gíslína Dögg hlýtur starfslaun bæjarlistamanns næsta árið. Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs Vestmannaeyja tilkynnti um valið en í máli hennar kom m.a. fram að Gíslína Dögg sé textíl- og fatahönnuður, auk þess sem hún hefur lagt stund á myndlist og ýmsan menningartengdan gjörning.
�??Myndlistin hefur fengið aukið vægi í lífi Gíslínu Daggar og hefur hún málað mikið og haldið myndlistasýningar bæði hér heima og í Reykjavík. Hún tók þátt í 5 myndlistasýningum árið 2013 bæði hér á landi og erlendis. Gíslína Dögg hefur einnig sýnt myndir á ljósmyndasýningum. Auk þessa stóð Gíslína fyrir gjörningi sem nefndist 365 kjólar þar sem hún gaf gömlum kjólum framhaldslíf, með gjörningnum safnaði Gíslína Dögg fé fyrir Landspítalann og lét gott af sér leiða. Gíslína hefur einnig komið að starfsemi leikfélaga sem búningahönnuður, séð um förðun ofl. Gíslína Dögg hefur því víða komið við í listinni þrátt fyrir að hún stefni nú á frekari sigra í myndlist,�?? sagði Páley.
�??Gíslína Dögg mun nýta tímann sem bæjarlistamaður til þess að undirbúa málverkasýningu en hún hefur hafið hugmyndavinnu upp úr bókum Kristínar Marju Baldursdóttur, Karítas án titils og �?reiða án striga. Gíslína Dögg mun einbeita sér að nálægð manneskjunnar við náttúruna og því að manneskjan verður oft ekki skilin án náttúrunnar. Gíslínu Dögg finnst þessi hugmynd einnig vera rík í þjóðarsál Eyjamanna og telur því að verkin hennar muni tala skýrt til þeirra. �?að er von okkar og trú að starfslaunin verði henni bæði hvatning og aðstoð við listsköpun sína,�?? bætti hún við áður en Bjartey Gylfadóttir, bæjarlistamaður síðasta árs kom upp og afhenti Gíslínu farandgrip sem bæjarlistamaður hverju sinni varðveitir í eitt ár.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.