Lundinn sestur upp í Eyjum
Hilmar Kristjánsson hafði samband við ritstjórn í gærkvöldi og tilkynnti að lundinn væri sestur upp. Hilmar sá lundann á sveimi bæði við Klifið og Heimaklett en lundinn er frekar seinna á ferðinni nú en yfirleitt áður. Georg Eiður Arnarson hefur fylgst lengur með lundakomu en elstu menn muna en hann skrifar á bloggsíðu sína að aldrei hafi hann séð lundann setjast jafn seint upp og nú. �??Lundinn er að setjast upp í kvöld, sem þýðir að þar með er komið sumar hjá mér, en þetta er í fyrsta skiptið sem það hittir nákvæmlega á sumardaginn fyrsta, en í öll þessi ár sem ég hef fylgst með komu lundans, hefur hann aldrei komið svona seint en t.d. bæði í fyrra og hitt í fyrra kom hann 13. apríl, sem er reyndar í það fyrsta,�?? skrifar Georg.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.