�?rslitaleikur á fimmtudaginn
Karlalið ÍBV tryggði sér oddaleik gegn Val með því að leggja Reykvíkinga að velli á heimavelli þeirra nú rétt í þessu en lokatölur urðu 26:27. Leikurinn var hin mesta skemmtun en liðin skiptust á að hafa forskotið og augljóst að þarna mætast tvö jöfn lið, enda mátti varla á milli sjá. Sérfræðingar hafa oft talað um að breiddin í Valsliðinu sé meiri og komi til með að skipta sköpum en það hefur ekki enn gerst. Eyjamenn sýndu líka að þeir eiga nokkur tromp uppi í erminni því ungir leikmenn eins og Dagur Arnarsson og Svavar Kári Grétarsson komu inn á og stóðu sig vel, ekki síst Svavar Kári sem lítið hefur spilað með meistaraflokki í vetur en hann skoraði tvö mörk í leiknum. Eyjamenn voru tveimur mörkum yfir þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir en Valsmönnum tókst að jafna metin. ÍBV brunaði í sókn þegar um mínúta var eftir og Agnar Smári Jónsson fiskaði vítakast. Theodór Sigurbjörnsson steig ískaldur á línuna og skoraði úr vítinu mikilvæga og kom ÍBV aftur yfir, 26:27. Valsmenn brunuðu í sókn en síðasta orðið átti Kolbeinn Ingibjargarson, markvörður ÍBV sem varði síðasta skot Valsmanna. Um leið rann leiktíminn út og fagnaðarlætin fara í sögubækurnar því þau voru mögnuð.
Stuðningurinn sem bæði lið ÍBV fengu í dag var frábær. Um 100 manns fóru frá Eyjum á leikinn og veittu fjölmörgum stuðningsmönnum liðsins liðsauka.
ÍBV og Valur mætast að nýju á fimmtudaginn. Sama verður upp á teningnum og á sunnudaginn, tveir leikir í röð, fyrst stelpurnar klukkan 14:00 og svo strákarnir klukkan 16:00. Stemmningin á sunnudaginn fór í sögubækurnar og má búast við meiri stemmningu, fleira fólki og vonandi frábærum handbolta. Hjá körlunum ræðst á fimmtudaginn hvort liðið kemst í úrslit og mætir þar FH eða Haukum. �?essi veisla er eitthvað sem enginn má missa af.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 8/3, Grétar Eyþórsson 5/1, Róbert Aron Hostert 4, Sindri Haraldsson 2, Magnús Stefánsson 2, Svavar Grétarsson 2, Agnar Smári Jónsson 2, Guðni Ingvarsson 2.
Varin skot: Henrik Eidsvaag 7, Kolbeinn Ingibjargarson 5.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.