Nú er allt að verða til reiðu fyrir handboltatvennu ársins, þ.e. þegar ÍBV tekurt á móti Val í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna og karla. Kvennalið félaganna leiða saman hesta sína klukkan 14:00 í dag en staðan í rimmunni er 2:1 fyrir Val. Vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram og dugir Val því sigur í dag til að komast áfram en vinni ÍBV, leika liðin oddaleik í Reykjavík á laugardaginn þar sem sigurvegarinn fer í úrslit.
Staðan í rimmu karlaliðanna er æsispennandi og gerist varla jafnari því staðan er 2:2 og því um hreinan úrslitaleik að ræða hvort liðið kemst í úrslit Íslandsmótsins. �?að verður því allt undir í íþróttamiðstöðinni í dag en karlaleikurinn hefst klukkan 16:00.
Reikna má með miklum fjölda áhorfenda en víst er að Valsmenn láti sitt ekki eftir liggja og fjölmenni á leikinn. Búið er að koma fyrir aukapöllum gengt stúkunni í íþróttasalnum til að mæta miklum áhuga á leiknum en þjálfarar liðanna og sjálfboðaliðar sáu um að gera salinn klárann. Rétt er að benda fólki á að mæta snemma til leiks til að forðast biðraðir.
�?ess má til gamans geta að fyrr í dag fara fram tveir leikir í undanúrslitum Íslandsmóts yngri flokka en klukkan 11:45 mætir 4. flokkur kvenna, yngri HK 1 og klukkan 12:45 mætast sömu lið í 4. flokki karla, eldri. Sigurvegarar leikjanna fara svo í úrslitaleik Íslandsmótsins. Alvöru handboltaáhugamenn geta því tekið með sér nesti í íþróttamiðstöðina í dag og verið þar í handboltasælu fram á kvöld, og vonandi lengur.