Fá lið hér á landi hafa álíka stuðningsmenn og karlalið ÍBV í handbolta. �?að er ekki bara að um 900 manns hafi verið á leik ÍBV og Vals í dag, heldur létu stuðningsmenn liðsins vel í sér heyra, tóku virkan þátt í leiknum og hvöttu strákana áfram. Peyjarnir í Hvíta riddaranum hafa lyft stemmningunni á leikjum ÍBV upp á hærra plan með söngvum sínum og stuðningi við liðið. Aðrir hafa fylgt í kjölfarið, þannig að úr verður alvöru ljónagryfja og líklega erfiðasti heimavöllur landsins.
Með fréttinni fylgir myndband af fögnuðinum eftir leikinn og rétt að horfa á myndbandið í háskerpu. Auk þess eru myndir af bestu stuðningsmönnum landsins með fréttinni.