Fyrsti leikur úrslitanna í kvöld
Í kvöld fer fram fyrsti leikur ÍBV og Hauka í úrslitakeppni karla í handbolta. Haukar mæta til leiks fullir sjálfstrausts eftir að hafa lagt ÍBV að velli í þrígang í vetur, þar af einu sinni í Eyjum þegar þeir unnu ÍBV 18:30. Hinir tveir leikirnir, sem fóru fram í Hafnarfirði, enduðu 30:24 og 23:22. Eyjamenn hafa því verið að nálgast Haukana og miðað við gang mála í vetur, þá ætti fyrsti sigurinn að vera handan við hornið. Verkefnið er hins vegar ærið, enda Haukaliðið bæði vel skipað og þrautreynt í úrslitakeppni en Hafnafjarðarliðið laut í lægra haldi fyrir Fram í úrslitunum í fyrra. �?eir vilja því eflaust breyta silfri síðasta tímabils í gull.
�?að er í raun ótrúlegt að ÍBV skuli vera komið alla leið í úrslit Íslandsmótsins. Í fyrra lék liðið í 1. deild þar sem það hafði verið síðustu sex tímabil. Eyjamenn tóku nýja stefnu fyrir nokkrum árum, ákváðu að greiða niður skuldir handboltadeildarinnar, sem þá voru orðnar umtalsverðar, og um leið byggja liðið upp á heimamönnum. Nú uppskera þeir samkvæmt því, deildin hefur greitt niður skuldirnar og leikmenn liðsins eru flestir frá Eyjum. Nýliðarnir hafa sýnt að ýmislegt er hægt ef menn eru tilbúnir að leggja þessa vinnu á sig og nú spyrja menn sig, eru Eyjamenn tilbúnir að fara alla leið? Eða eru þeir kannski sáttir með árangurinn?
Leikur liðanna fer fram í Hafnarfirði og hefst klukkan 19:45 en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.