Að bæta hag bæjarbúa
Ársreikningar bæjarsjóðs voru lagðir fyrir bæjarstjórn Vestmannaeyja þann 15. apríl sl. �?g ætla ekki að þreyta ykkur með tölulegum upplýsingum eða skrifa um fjármagnsliði, veltufé eða vaxtaberandi skuldir. Frekar að ræða þær ákvarðanir sem meirihluti Sjálfstæðisflokks lagðiu fram um bætta þjónustu við bæjarbúa í ljósi góðrar stöðu bæjarsjóðs.
Lækkun leikskólagjalda
Vestmannaeyjabær er ábyrgur fyrir rekstri tveggja leikskóla. Sjálfur rekur hann leikskólann Kirkjugerði og síðan er hann með samning við Hjalla um rekstur leikskólans Sóla. Mismunandi stefnur og áherslur eru á þessum tveimur leikskólum. Jákvætt val fyrir foreldra sem njóta þess nú, í kjölfar ákvörðunar bæjarstjórnar að borga 6% lægri leikskólagjöld.
Niðurgreiðsla til dagmæðra
Myndarleg hækkun á niðurgreiðslu til dagmæðra var einnig samþykkt, úr 29.750 upp í 40.000 krónur. Eins var samþykkt að niðurgreiðslan hefjist fyrr, lækkar úr 15 mánuðum niður í 12 mánuði. Með þessu er bæjarstjórn Vestmannaeyja að koma til móts við barnafjölskyldur í Eyjum og leggja frekari grunn að því góða barnasamfélagi sem við viljum búa í.
Gjaldtaka frístundavers lækkar
Frístundaverið er mikilvægur þáttur fyrir þau börn sem eru að fara af leikskólastiginu og yfir á grunnskólastigið. Hefur verið gerður góður rómur af því starfi sem þar fer fram. Gjaldtaka fyrir þá þjónustu verður áfram með því sem lægst þekkist í samanburðarsveitarfélögum og ætti því að gefa foreldrum frekari tækifæri til að nýta þá góðu þjónustu sem veitt er í gamla �?órsheimilinu.
Frítt í sund
Börn yngri en 18 ára sem búsett eru í Vestmannaeyjum fá frítt í sund. Við höfum eina glæsilegustu sundlaug á landinu hér í Eyjum og eitt flottasta útisvæðið. Bæjarstjórn býður börnunum okkar, upp að 18 ára aldri að nýta þessa aðstöðu endurgjaldslaust! Enn eitt dæmið um það barnvæna samfélag sem við viljum búa í og búa til.
Niðurfelling fasteignaskatts á íbúa eldri borgara
�?rátt fyrir kröftug mótmæli ráðuneytis hefur bæjarstjórn staðið fast á þeirri ákvörðun sinni að fella niður fasteignaskatt á íbúðir íbúa 70 ára og eldri í Eyjum. Ákvörðun sem er litið til víða á landinu, sem fyrirmynd um hvernig skal reynt að aðstoða þá sem byggðu upp þetta þjóðfélag til að eiga áhyggjulaust ævikvöld.
�?að er merki um ábyrgð í rekstri að ákvarðanir sem þessar séu ekki teknar fyrr en niðurstaða reikninga liggur fyrir. Ef bæjarsjóður stendur vel eins og hann sannarlega gerir fá íbúar bæjarfélagsins að njóta þess. �?etta eru þó ekki allt nýjar ákvarðanir, eldri borgarar hafa ekki greitt fasteignaskatt síðastliðinn tvö ár og frítt hefur verið í sund fyrir börn yngri en 18 ára nær allt kjörtímabilið.
Við getum örugglega gert betur á mörgum sviðum og ætlum okkur það, ef Vestmannaeyingar veita Sjálfstæðisflokknum brautargengi í kosningunum 31. maí næstkomandi. Í ljósi reynslunnar setjum við X við D fyrir áframhaldandi ráðdeild og bætta þjónustu við okkur öll.
Sigursveinn �?órðarson
skipar 8. sæti í lista Sjálfstæðismanna.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.