l�?�þrjátíu og einn, þrjátíu og tveir, þrjátíu og þrír�?��?� öskrar Jóhanna Jóhanns taktfast að Ragga.
�??Jóhanna�?� ég get ekki meira�?� segir Raggi sem rétt nær að pústa út úr sér hálfri setningunni.
�??Hættu þessu væli Ragnar �?ór. Haltu áfram. �?rjátíu og fjórir, þrjátíu og fimm. Flottur,�?� segir Jóhanna Jóhanns á meðan Ragnar liggur á bakinu með lófana upp í loftið við axlirnar og minnir óþægilega mikið á einn alþingismann okkar þjóðar. Svitinn lekur af honum�?�
Á sama tíma í Skýlinu sitja fjórir valdamestu trillukarlar Vestmannaeyja við eitt borðið. Siggi á Hlöddanum, Bragi Steingríms, Goggi Gella og Halli Hannesar.
�??Lásuð þið greinina á Eyjafréttum um þetta heilsuátak hjá þessum Ragga Togara?�?� spyr Goggi og tekur hægt niður kolbikarsvört pilot sólgleraugu með andliti sínu. �??Ertu Togari eða Trillukarl, það er verið að setja starf okkar og lifurværi í viðlíkingu við mann sem ekki er í góðu formi, þetta er hneisa,�?� segir Siggi á Hlöddanum og lemur blýþungri hendi sinni í borðið. �?að reiður að háræðarnar í andliti hans springa og gefur því góða mynd á reiði hans.
�??�?að veit hver heilvita maður sem farið hefur á handfæri að það er mikið erfiðara að vera á trillu heldur en að vera á einhverjum uppsjávarpung. �?að var erfiðara á Dekkjaverkstæðinu um miðjan apríl á dekkjavertíðinni heldur en að draga einhverja nótapjötlu yfir heila loðnuvertíð,�?� segir Bragi Steingríms, pírir annað augað, dregur upp brennivínspela og hellir einum tappa í kaffið og drekkur það síðan alveg sjóðandi heitt.
Á næsta borði situr Biggi Skipper og heyrir spjall trillukónunganna. Hann er að borða Skýlisborgara, heldur utan um hann með báðum höndum. Hann klárar síðasta bitann, tekur munnþurrku úr þar til gerðu munnþurrkuboxi og þrífur á sér munnvikin, síðan puttana. Krumpar munnþurrkuna saman og setur hana á diskinn. Fær sér sopa af Pepsi-inu sínu og segir eitt orð: �??Mublusjómaður�?�. Stendur síðan upp og labbar út.
�??�?etta er rétt hjá Bigga Skipper. �?etta eru bara mublusjómenn, þessir uppsjávartappar. �?eir vita ekki hvað er að vera karlmaður,�?� segir Goggi .
�??�?g skal plata hann með mér á Víkuröstina í alvöru fiskerí. Hann á eftir að æla út úr sér lungunum og vera meira máttvana en meginþorri Vestmannaeyinga klukkan þrjú að degi til á mánudegi eftir �?jóðhátíð,�?� segir Halli Hannesar rétt áður en honum fer að dagdreyma um gömlu handboltasigrana sem hann átti í denn.
�??Já þetta er rétt hjá þér, við sjanghæjum honum um borð í Víkuröstina á sunnudagsmorgun. �?g er með staðfestar heimildir frá Jóhönnu Jóhanns að Raggi fær að drekka eins mikið og hann vill á laugardögum, því á sunnudögum er mælingardagur og því hálfgerður frídagur frá púli og puði,�?� segir Siggi á Hlöddanum.
�??Ha?�?� segir Halli Hannesar og hættir snöggvast að dagdreyma.
�??Við erum að tala um að ræna þessum Ragga Togara og fara með hann á Víkuröstina í mokfiskerí og sjá hversu mikill jaxl hann er þá.�??
�??Jaááá, það er góð hugmynd, gerum það,�?� segir Halli Hannesar og nuddar saman lófunum, glottir út í eitt og minnir óneitanlega á �?skar �?ór Kristjánsson stýrimann á �?órunni Sveins vera kominn á þurrafyllerí við það eitt að þeyta rjóma í Irish Coffey.
Ennþá liggur Raggi á bakinu á gólfinu í Hressó. �??Jóhanna, ég get ekki hreyft mig, þú verður að hringja á sjúkrabíl�?�.
�??Raggi, veistu ekki hvaða dagur er í dag? �?að er laugardagur og í dag máttu fá þér í glas. Eina sem þú þarft að gera á morgun er að koma í mælingu,�?� segir Jóhanna og brosir til hans.
Jóhanna er vart búin að ljúka orðinu þegar Raggi er staðinn upp. �??�?g er allt annar, ég er bara góður, hef aldrei verið betri,�?� segir Raggi hýr á brá, klappar saman lófum og er kominn í meira stuð en áhöfnin á Berg Ve í helgarfríi.
�??Frábært Raggi, ég ætla að skrifa handa þér matarprógram. Farðu bara í sturtu, þetta verður tilbúið eftir tuttugu mínútur,�?� segir Jóhanna á meðan hún moppar gólfið eftir Ragga.
�??Já skal gert,�?� segir Raggi, réttir fram hægri höndina og setur handabak sitt upp að enni sínu. Setur hana síðan aftur með síðunni og röltir inn í karlaklefann.
�?ar stendur Smári Harðars ber að ofan fyrir framan vaskinn og er að fá sér vatn í brúsa til að blanda prótínið sitt í eftir granítharða æfingu. Raggi þekkir Smára Harðars nokkuð vel enda eru þeir saman í slökkviliðinu. En Raggi hefur aldrei séð hann beran að ofan áður. Eina sem kom upp í hugann á Ragga var: �??Hólímólí�?�.
�??Blessaður Raggi, þú ert bara byrjaður að æfa á fullu, mikið er það nú flott. Alveg kominn tími á að styrkja þig í einhverju öðru en glasalyftingum,�?� segir Smári og hristir saman súkkulaðiprótínshake-inn sinn.
�??Jú, jú mikið rétt Smári minn,�?� tautar Raggi útúr sér, en sýnist vera hálf lítill í sér fyrir framan þetta heljarmenni.
Raggi klæðir sig úr fötunum, skellir handklæðinu utan um mittið og tekur upp sjampóbrúsa með áletruninni �??Gray2black�?� og röltir síðan í átt að sturtunni. Tekur handklæðið utan af sér, lætur það á snagann og röltir inn í sturtuklefann.
Raggi þvær sér hátt og lágt eða svona alla leið eins og karlmaður gerir það. Undir hendur, hár og miðsvæðis. Ekki í þessari röð enda ný búinn að kaupa sér �??Gray2Black�?� fyrir tugi þúsunda. Í þetta skiptið endar hann á sjampóinu.
Hann setur væna slummu í lófann á sér, lokar síðan augunum og byrjar að nudda, nudda og nudda. Á meðan hann nuddar raular hann lagið Back to black með AC/DC og vonar svo innilega að hárið geri það sama.
�?egar mesta sjampófroðan er farin af fer Raggi að reyna að opna augun. Honum svíður svolítið. En eins og honum einum er lagið þá gefst hann ekki upp. En þegar Ragga tekst loksins að opna augun sér hann að hann sér ekki lengur einn í sturtuklefanum. �?arna stendur fjörtíu og níu ára karlmaður sem er í betra formi en 99% Evrópubúa, þarna stendur Smári Harðars á móti Ragga í sturtunni. Raggi virðir hann fyrir sér og hreinlega gat ekki hætt að horfa, bara gat það ekki. �??�?vílíkt heljarmenni,�?� hugsar Raggi og reynir að láta lítið á því bera að hann getur ekki hætt að horfa.
�??Hann er eins og skorinn út úr timbri, eins og grísk marmarastytta með træbal tattú á vinstri hendinni. Brjóstkassi sem Pamela Anderson gæti verið stolt af og magavöðvar sem Magnús Scheving dreymdi um að hafa þegar hann var í þolfiminni. Og hann er að verða FIMMTÍU ára! �?etta gengur bara ekki upp,�?� hugsar Raggi með sér með hálf gapandi munninn. �?að gapandi að Smári Harðas tekur eftir aðdáunarverðu augnaráði Ragga.
Smári Harðars ákveður að leika sér aðeins að Ragga og byrjar að taka líkamsræktarpósur í sturtunni á móti. Hann spennir og hnikkir alla helstu vöðva og endar síðan á Jóa Fel sturtustellingunni. Blikkar síðan í átt til Ragga og segir: �??Flottur sá gamli�?� og hnikkir síðan í sitthvorn brjóstvöðvann af miklum ákafa sem minnti Ragga á frjálslega vaxinn kvenmann á hlaupabretti.
�??Já, þú ert ekkert smá flottur,�?� segir Raggi en þarna standa þeir báðir kviknaktir og horfa í augun á hvorum öðrum eins og kúrekar í einvígi.
�??Ef ég gæti þá myndi ég vilja vera alveg eins vaxinn og þú Smári,�?� segir Raggi og horfir ennþá aðdáunaraugum á Smára.
�??Veistu hvað Raggi, ég er búinn að vera að lyfta í tugi ára. �?g er búinn að fara með tugþúsund karlmönnum í sturtu eftir erfiðar æfingar en veistu hvað?�?�
�??Hvað?�?? segir Raggi.
�??�?að er hægt að stækka alla vöðva líkamanns með réttum æfingum og verða virkilega flottur, en það er einn �??vöðvi�?� sem við karlmennirnir myndum fórna lífi okkar til að stækka en getum það ekki. Auðvitað er ég að tala um limastærð�?�
Smári er varla búinn að ljúka orðinu þegar hann er byrjaður að benda út frá sér í áttina að miðsvæði Ragga. �??Sama hvað menn æfa þá fá þeir ekki svona stórann tilla,�?� segir Smári Harðars mjög hissa á svip.
�??Já Baldara kvikindið,�?� segir Raggi hálf gortandi. �??�?að má segja að við Baldararnir höfum verið heppnir í genalottóinu,�?� blikkar síðan Smára Harðars, tekur Gray2black sjampóflöskuna, gengur að handklæðinu, þurrkar sér og klæðir sig síðan í. Röltir síðan í Vínbúðina og kaupir sér kassa af bjór.
�?að eru ekki liðnar þrjátíu mínútur síðan Raggi labbaði útúr Hressó og er kominn með volgan bjór í hönd og eina ferska Salem í sófanum í Valhöll. Hann bölvar í hljóði: �??�?murlegt að þessi Vínbúð geti ekki drullað sér að vera með kæli svo maður geti ekki náð sér í einn ískaldan þegar maður vill�?�. En Raggi er með einbeittan brotavilja, hann ætlar sér að nýta eina fylleríið sem hann fengi í vikunni og nýta það vel.
Eftir að hafa setið á sumbli og drukkið fimmtán bjóra án þess að standa upp og pissa og snúið við plötunni �??Helgarfrí�?� með Gylfa �?gis tuttugu sinnum fann Raggi hvernig dópamínið byrjaði að leika við líkama hans. Hann fann fyrir vellíðan og hvernig allir strengir og stesshormón eftir æfingar vikunnar hurfu úr líkamanum eins og hægðir eftir erfiða �?jóðhátíð.
�??Aaaaaaahhhhh,�?� segir Raggi og tekur síðan djúpan drátt af rettunni og síðasta sopann af bjórnum. Honum langaði ekki meira í bjór, svo hann sótti sér viskí.
�??�?g get ekki sullað í öllum þessum hitaeiningum,�?� hugsaði Raggi. Jóhanna Jóhanns á eftir að drepa mig ef hún sér ekki árangur í næstu mælingum.
Raggi situr enn í sófanum og drekkur viskí, tíminn er fljótari að líða þegar maður drekkur viskí, sérstaklega þegar maður er að hlusta á Gylfa �?gis.
�?egar klukkan slær tólf að miðnætti ákveður Raggi að kíkja aðeins út. Hann stendur upp úr sófanum og finnur fyrir miklum svima. Venjulegur maður sem ekki hefur stigið ölduna meira en helming ævinna eins og Raggi hefði dottið aftur í sófann. En ekki Raggi, hann hristi hausinn, teygði sig í nýjan sígarettupakka og ætlaði að rífa selófónið af en átti erfitt með sjón til að finna litla flipann til að rífa selófónið af.
Hann finnur hvað sjónin og hvernig hendur og fætur voru langt á eftir heilanum. �??Andskotinn sjálfur ég er orðinn blindfullur,�?� hugsar Raggi og pírir vinstra augað eins og hann getur og opnar það hægra upp á gátt. �?egar Raggi áttar sig á því að sjónin er svipuð og hjá ökumanni sem er að keyra í rigningu með bilaðar rúðuþurrkur þá fattaði hann það að hann þyrfti að gera eitthvað.
Hann staulast út úr stofunni og inní í eldhús, tekur í handfangið á ísskápnum, reynir að opna hann en dettur þá niður á hnén. Hann á bara nokkrar sekúndur ólifaðar ef hann nær ekki að opna ísskápinn. Hann finnur hvernig drykkjuslefið byrjar að leka niður vinstri kinnina. Hann réttir upp vinstri öxlina og notar þykka hönd sína til að þurrka slefið og öskrar síðan af öllum mætti: �??Ekki í kvöld, ekki í kvöld�?�. Tekur aftur um handfangið og rífur sig á lappir, Opnar ísskápinn og reynir að fókusa þangað til hann sér það sem hann leitar af. Í stofunni heyrist í plötuspilaranum: �??�?�Í kvöld á ég helgarfrí�?� Í kvöld á ég helgarfrí�?� í kvöld á ég helgarfrí�?��?�
Raggi lítur grimmdarlega inn í ísskápinn og hugsar: �??Helvítis platan er rispuð�?�. En þarna er það, fallega löguð, héluð, blá og silfruð. �?etta er RedBull í dós. Hann rífur hana út úr ísskápnum og eins og Stjáni Blái að fá sér spínat opnar Raggi dósina, réttir hendina hátt til lofts og hellir upp í sig. Hann er ekki búinn að hella dósinni upp í sig þegar hann finnur hvernig koffínið og sykurinn nær að sparka heila hans aftur í gang. Raggi hristir hausinn og lokar ísskápnum, fer í leðurjakkann og kúrekastígvélin, slekkur á græjunum og röltir út.
Raggi hafði áveðið að labba á Lundann, enda er Lundinn orðinn einn heitasti staðurinn í dag.
�?egar Raggi labbar inn heilsar Jón Ingi honum eins og forsetanum sjálfum, enda ekki furða þar sem innkoman af Ragga er oft búin að halda uppi staðnum yfir dimmustu mánuðina. �??Blessaður Raggi minn og vertu margblessaður, gott að fá þig,�?� segir Jón Ingi á meðan hann dælir bjór af krana í glas, réttir það í hægri hönd Ragga og hellir síðan Jagermeister í stórt staupglas og setur í vinstri krumluna.
Raggi blikkar hann og segir: �??Skrifaðu þetta bara á Togarann�?�,skítur á sig staupinu og röltir með bjórinn. �?að er aðeins byrjaði að týnast á staðinn. �?arna stendur Dj Höddi og spilar Michel Jackson lög með tilheyrandi ljósasjófi. Raggi sér að þarna er mikið af fólki frá Eyverjum og Sjálfstæðisflokki Vestmannaeyja greinilega að gera sig í stellingar fyrir baráttuna á næstu mánuði.
Raggi horfir út á dansgólfið. Hann sér móta fyrir manneskju, en gat ekki verið viss. Blátt ljósashow-ið og þokan frá reykvélinni gerði það að verkum að Raggi fékk störu á þessa veru á dansgólfinu. Hann sér eitthvað þokast hægt í átt til sín. �??Hvað ætli þetta sé,�?� hugsar Raggi. En út úr þokunni sér hann birtast karlmann í ljósbláum jakkafötum, eins og klipptur út úr Dressman auglýsingu. Hann var eins og Ási í Bæ myndi kalla: �??Cavaler�?�. Vel tenntur, íþróttalega vaxinn, dökkt og þykkt hár sem vatnsgreitt er til hliðar. Raggi starir betur og hugsar: �??Ef eyrun á þessum manni væru ekki alveg svona útstæð, væri hann fullkominn.�?� �?essi maður labbar í áttina til Ragga og segir: �??Blessaður Raggi Togari.�?�
Raggi horftir á hann og sér þá hvern þokan hafði að geyma. �??Blessaður Elliði Bæjarstjóri, gaman að sjá þig, ég var einmitt að pæla hver væri þarna á dansgólfinu�?�.
�??Jú jú, maður er best geymdur á dansgólfinu. Enda í Fyrirmyndarbílstjórafélaginu og fer það í sektarsjóð ef við förum ekki á gólfið þegar Dj Höddi er að spila Micael Jackson.�?�
�??Jón Ingi. Komdu með tvo tvöfalda gin&tonic,�?� segir Elliði Bæjarstjóri og brosir sínu blíðasta í áttina til Jóns Ingar. �?að fallega að ef Collgate tannkremsfyrirtækið hefði náð myndum af brosinu hefðu þeir notað þá mynd í næstu herferð sína.
Jón Ingi græjar tvo tvöfalda Gin&tonic og réttir Elliða.
�??Hérna,�?� segir Elliði og réttir Ragga glas. Raggi verður hálf hissa og reiður á svipinn í leiðinni og segir: �??Elliði minn ég er nú alveg aflögufær að borga mína eigin drykki sjálfur.�?� Elliði brosir aftur og nú ennþá breiðar, brosi sem brætt gæti súrál. �??�?að er einmitt þessvegna sem ég er að bjóða þér í glas. �?að hefði aldrei gengið svona vel hjá okkur í bæjarstjórninni á þessu kjörtímabili ef við hefðum ekki fengið útsvarið frá þér.�?�
�??Já, þú meinar, takk og skál,�?� segir Raggi og skálar við Elliða.
�??Hvernig gengur annars hjá þér Raggi? �?g sá á heimasíðunni hjá Eyjafréttum að þú værir kominn í hellings átak. Og ég er ekki frá því að það sést hellings munur á þér. Finnst þér ekki allt annað líf að vera kominn í form?�?� segir Elliði og tekur góðan sopa og klappar Ragga á bakið.
�??Jú þetta er allt annað líf,�?�
�??Eru kerlingarnar ekki alveg vitlausar í Togarann eftir að perustefnið fór að minnka�?� segir Elliði og blikkar Ragga.
�??Jú og nei, ég sé það alveg að kvennhyllin er alveg að gera sig þegar ég labba Strandveginn eftir æfingar. En það er bara ein stúlka sem var eitthvað byrjuð að lóða í kringum mig um daginn forðast mig meira og meira með lækkandi fituprósentu. �?ú ert nú sálfræðimenntaður, hvað gæti þetta verið�?�.
Elliði stríkur hökuna hægt og rólega, fær sér síðan sopa af glasinu og segir: �??Hún hlýtur að vera �??Chubby Chaser�?� eða eins og það er kallað á íslensku �??Fitubollufangari�?�.
�??Chubbí tjeee�?�. hvað?�?� endurtekur Raggi. �??Hvað í andskotanum er það,�?� segir Raggi mjög hissa.
�??�?g skal útskýra. Fitubollufangarar eru eins og venjulegt fólk, þeir finnast bæði hjá karlmönnum og kvenmönnum. �?ó miklu meira í karlmönnum. Fitubollufangarar leita sér ómeðvitað að maka út frá grunnbrennslu líkamans og finna því maka út frá lyktarskyni eingöngu. Fyrir hundrað árum var nær ómögulegt að finna út hverjir eða hverjar voru fitubollufangarar í eðli sínu. Einfaldlega vegna þess að fólk var almennt ekki þéttvaxið. En í dag er mjög auðvelt að sjá hverjir sækast í skjólgóðar konur eða frjálslega vaxna karlmenn. �?etta var auðvitað mjög hentugt fyrir nokkur þúsund árum þegar matarvalið var ekki mikið og menn þurftu að veiða sér til matar að eiga þá maka með mjög hæga grunnbrennslu sem lítið þurfti að borða. En í dag þá fitnar þetta fólk bara við það að horfa á snakkpoka. En sem betur fer eru enþá fitubollufangaragenið en til staðar í sumum einstaklingum sem gerir þéttvaxna einstaklinga frambærilega á stefnumótamörkuðum víðs vegar um heiminn,�?� segir Elliði Bæjarstjóri og tekur stóran sopa af drykknum. �?urrkar sér um munnvikinn og segir: �??Skilur þú þetta núna Raggi?�?�
�??Jaaaaááá�?� ég held það. En hvernig þekki ég helst fitbollufangara?�?�
)�?að er mjög auðvelt, þetta eru nokkur atriði. Númer eitt, þessir einstaklingar eru yfirleitt ekki feitir sjálfir. Númer tvö, þeir eru í eðli sínu mjög lélegir veiðimenn og gætur varla veitt sér til matar þó líf þeirra lægi við. Númer þrjú, kvenhormónið estrógen er í meira lægi bæði í körlum og kvenmönnum með þessa áráttu. �?etta fólk eru miklar tilfinningaverur og á auðvelt með að setja sig inn í tilfinngar annars fólks og gráta og ræða þær ef því ber að skilja. Jæja best að drífa sig á dansgólfið, Billy Jean var að byrja,�?� segir Elliði og stendur upp. Tekur síðasta sopann úr glasinu og étur sítrónuna, grettir sig í framan og tvistar síðan áleiðis í átt að dansgólfinu.
�??Já auðvitað. �?að hlaut að vera það,�?� tautar Raggi út úr sér en finnur um leið hvernig tvöfaldi gin&tonic-inn byrjar að gera hann fullann. Hann finnur það að hann hefði átt að sleppa síðasta sopanum. Honum byrjar að svima og allur heimurinn fer að sýnast eins og hann sé í þurrkara. Raggi sér í hvað stefnir. Eins og feigur maður sem fela kann ótta sinn ákvað Raggi að deyja ekki á Lundanum í þetta skiptið. Hann ákeður að standa upp og rölta heim. Heimleiðin var ekki greið, honum var bumbult og svimaði. Hann sest fyrir utan Lundann og var við það að logna útaf í faðmi við ljósastaur þegar rauð Toyota Corolla kemur akandi niður Kirkjuveginn. Af einhverjum ástæðum fór Raggi að hugsa um markið sem Marteinn Bjargvættur skoraði úr hjólhestaspyrnu fyrir ÍBV á móti Fylki á sínum tíma og tryggði ÍBV áfram sæti í efstu deild. En þarna var hann Pálmi Stórhöfði kominn og stoppaði fyrir Ragga. �??Blessaður Raggi minn, á ég ekki að skutla þér heim�?� segir Pálmi áhyggjufullur á svip. �??Ummmmm ummmm�?� umlar Raggi út úr sér.
Pálmi Stórhöfði opnar hurðina og Raggi skríður inn í bílinn og nær með einhverju móti að loka á eftir sér. Pálmi Stórhöfði keyrir í átt að Strandveginum, síðan Strandveginn og brátt eru þeir fyrir utan Valhöll. �??Jæja Raggi minn. Við erum komnir,�?� segir Pálmi og teygir sig yfir Ragga til að opna hurðina. Raggi nær að velta sér út úr bílnum og skellur í götuna. Stendur síðan upp, horfir daufum augum inn í bílinn og segir: �??Daddd fyyyyiiii,�?� og lokar síðan hurðinni.
Pálmi keyrir í burtu en Raggi labbar að Valhöll og setur hægra handabakið að Valhöll og labbar með húsinu.
En hann veit ekki að í bíl fyrir utan Klettinn sitja Bragi Steingríms, Halli Hannesar, Siggi á Hlöddanum og Goggi í leyni allir saman.
�??Hvað í andskotanum er þessi drengstauli að gera með handabakinu,�?� segir Siggi á Hlöddanum sem situr frammi í farþegasætinu við hliðiná Gogga Gellu. �??�?etta er eitthvað slökkvimannatrix sem þeir læra í reykköfun�?� segir Goggi og reynir að þurrka móðuna af framrúðunni með peysuerminni sinni.
�??Stelum honum núna!�?� segir Bragi Steingríms sem situr í aftursætinu við hliðiná Halla Hannesar sem rumskar þegar Bragi Steingríms byrjar að iða í sætinu.
�??Rólegur Bragi. �?ú gerir ekkert án okkar þú ert orðinn sjötíu ára gamalmenni,�?� tautar Halli Hannesar pirraður yfir því að vakna.
Bragi Steingríms rífur reiðilega í hálsmálið á Halla Hannesar og segir: �??�?ó svo að ég sé orðinn gamall þá hef ég átt fjóra �?rasa og hef stundað trilluveiðar í fjörtíu og fimm ár. Lengur en þú hefur lifað svo vertu bara rólegur því ég hef affelgað stærri túttur en þig vinur minn�?�.
Bragi Steingríms sleppir Halla Hannesar sem er hálf smeikur á svip og segir: �??Fyrirgefðu, ég�?�..�?�
Halli Hannesar var ekki búinn að ljúka fyrirgefningunni þegar Goggi segir höstulega: �??Haldið kjafti peyjar við verðum að standa saman í þessu fyrir alla þá sem hafa stundað handfæri. Bíðið við, hann er kominn inn.�?�
Raggi nær loksins að opna útidyrahurðina og nær að henda af sér kúrekastígvélunum og kveikja sér í einni Salem, sem gekk ekki betur en það að hann sveið hárin af annari augabrúninni sinni. Labbar að hurðinni fram á svalir sem snúa í átt að Strandveginum og opnar þær.
�??Beygið ykkur, hann gæti séð okkur,�?� segir Siggi á Hlöddanum í þvílíku offorsi. �?eir beygja sig allir og fela. �?að skipti samt voðalega litlu máli því áfengismagnið í líkama Ragga var það mikið að hann sá varla út fyrir svalirnar. Raggi fær sér þrjá smóka og hendir síðan restinni af sígarettunni á dekkið á svölunum lokar á eftir sér og dettur í sófann og deyr áfengisdauða.
Fjórir fræknu í bílnum koma allir úr sínu hýði þegar Halli Hannesar segir: �??�?g hef verið með honum á sjó og hef dottið í það með honum og miðað við þetta ástand er ég ekki frá því að við þurfum ekki að bíða lengi þar til við getum sjanghæjað honum.�??
Goggi lítur á klukkuna, henni vantar korter í fjögur. �??Bíðum í fimm mínútur í viðbót,�?� segir Goggi og keyrir bílnum upp innkeyrsluna og leggur honum bak við blæju haustnæturbláa BMW-inn hans Ragga. �?eir gera sig allir tilbúna, Goggi drepur á bílnum og allir opna þeir hurðirna á bílnum á sama tíma. Bragi Steingríms teygir sig og togar, enda orðinn gamall og á erfitt með að sitja í bíl.
�??Hvað er gamli eitthvað stirður,�?� hvíslar Halli Hannesar í eyrað á Braga Steingríms. En Bragi er snöggur til og kýlir Halla í magann, þannig að Halli missir andann. Siggi á Hlöddanum reiðist það snökkt að allt blóðið í líkamana hans er komið í andlitið og stútfylltu háræðarnar aftur. Rífur í Braga og Halla og gefur þeim augnaráð sem þarf engin orð. �?eir vissu báðir að þeir áttu ekki séns.
�??Jæja strákar. Hættið þessu rugli. Kýlum´áetta.�?�
�?eir labba allir hinir rólegustu, með Gogga Gellu fremstan. Meðfram stiganum, upp stigann og að útidyrahurðinni. Goggi tekur létt í hurðahúninn og ýtir honum niður og ýtir létt á hurðina. �?að braka í hjöruliðunum þegar hurðin opnast. �?eir eru skíthræddir að vekja Ragga. En þeir þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af því enda Raggi meðvitundarlaus í sófanum.
Allt í einu standa þeir fjórir í röð fyrir framan Ragga í stofunni. Spennan var nú orðin það mikil að Bragi Steingríms tók stjórnina, slær létt í bringuna á Gogga og Halla og bendir á efri hluta Ragga. Slær síðan létt í Sigga á Hlöddanum, bendir síðan á sig, Sigga og hnikkir í átt að löppunum.
Hvíslar síðan hljótt �??Einn, tveir og �?�..�?�
�?eir lyfta allir á sama tíma og byrja að rölta með hann út úr stofunni, forstofunni, niður stigann og út í bíl. Troða honum í framsætið, sem gekk álíka vel og að kasta nót og beygja í bak. Goggi sest í bílstjórasætið og spennir á hann beltið. Allt í einu byrjar Raggi að ranka eitthvað við sér, horfir glösóttum augum á Gogga, fer í vasann á jakkanum sínum og réttir honum kortið og segir �??Heim takk.�?� Síðan slökknar á honum aftur.
Bragi Steingríms, Siggi á Hlöddanum og Halli Hannesar flissa í aftursætinu og Goggi keyrir af stað.
�??Leyfið mér að fá hann á �?rasann. �?g skal vera búinn að gera hann úrvinda áður en við komumst út fyrir hafnargarðana,�?� segir Bragi Steingríms og grettir á sér andlitið og flissar lágt.
�??�?g get ekki tekið hann með á Klóna eða réttara sagt nýju Blíðuna. Læt ekki einhvern mublusjómann æla út nýja bátinn,�?� segir Goggi , gefur stefnuljós og beygir til vinstri.
�??Djöfull væri nú gaman að fara með hann á Hlöddann, hann ætti aldrei séns. En ég get bara ekki staðið í þessu. �?g er að fara í Herjólf klukkan átta og svo í rómantíska ferð til Kaupmannahafnar með nýju kærustunni að hitta skildmenni hennar og drekka Gamel Dansk,�?� segir Siggi á Hlöddanum og horfir út um gluggan á fullt tunglið og hugsar um komandi daga og brosir sínu blíðasta á meðan dagdrauminum stendur.
�??Hey peyjar, hættið þessu rugli, ég tek hann á Víkurröstina. Læt hann sofa úr sér í klukkutíma og fer með hann sunnan fyrir Surtsey í þorskmok og þá sjáum við hvort hann sé trillukarl eða togaratussa,�?� segir Halli Hannesar og hallar sér á milli sætanna horfir á Ragga dauðan í framsætinu og brosir.
Bíllinn stoppar fyrir framan kranann við Nausthamarsbryggjuna. Halli Hannesar stekkur fyrstur út og hleypur með bryggjunni til að gangsetja Víkkurröstina og koma henni undir kranann.
Á meðan staulast Bragi Steingríms, Siggi á Hlöddanum og Goggi út úr bílnum. Klukkan er um fimm og sólin að koma upp. Birtan blindar Braga Steingríms og Sigga á Hlöddanum en Goggi hafði vaðið fyrir neðan sig og var búinn að setja upp sólgleraugun áður en hann fór út úr bílnum.
�??Setjum bara spotta utan um lappirnar á honum og hífum hann um borð. Líkt og ég gerði þegar ég hífði tvö hundruð kílóa lúðuna úr �?rasa Ve árið 2007,�?� segir Bragi Steingríms og sperrir sig allan upp, þenur út brjóstkassann og greynilega stoltur af afreki sínu.
�??Nei peyjar, ekkert kjaftæði. Leggjum hann í karið hérna og hífum hann bara um borð,�?� segir Goggi orðinn óþolinmóður á öllu þessu spjalli og orðinn landsprunginn og vill fara að drífa sig á sjó. Labbar að farþegahurðinni, opnar hana og við það lekur Raggi út, en dettur ekki í gangstéttina því hann er fastur í öryggisbeltinu eing og ánetjuð ýsa í trollinu á Stíganda.
Siggi á Hlöddanum heldur Ragga á meðan Bragi Steingríms fer inn bílstjóramegin og losar bílbeltið. Siggi á Hlöddanum leggur Ragga í læsta hliðarlegu á gangstéttina, tekur síðan í bæði hnén á honum og klemmir þau utan um nefið á honum. Lyftir honum síðan upp ásamt Braga Steingríms, sem fannst lítið til þyngdar Ragga koma, enda varla liðin sjö ár síðan hann dró lúðuna um borð í �?rasann. �?eir leggja hann í karið. Goggi hleypur með gilsinn og festir í karið, fer síðan að krananum, ýtir gleraugunum betur upp á nefið og lyftir karinu upp af mikilli yfirvegun, á meðan Halli Hannesar er búinn að setja í gang, leysa landfestar og koma Víkurröstinni við kæjann undir kranann. Siggi á Hlöddanum og Bragi Steingríms horfa á Gogga Gellu slaka karinu á dekkið á Víkkurröstinni án nokkura áfalla, enda Goggi endemum klár á bryggjukrana og eini maðurinn í heiminum sem gæti opnað Coke í gleri með krana.
Halli Hannesar losar gilsinn, lyftir upp hægri hönd sinni og hnikkir í átt til peyjanna. Uppá bryggjunni standa þeir þrír eftir, Siggi á Hlöddanum, Bragi Steingríms og Goggi og kalla til Halla Hannesar: �??Láttu hann finna fyrir því! �?ú verður að buga hann, fyrir trillukarla út um allan heim.�?�
Halli Hannesar glottir til þeirra og kallar: �??�?að verður auðveldara en að skora mark úr hraðaupphlaupi.�?� Hverfur síðan inn, bakkar lítilega, beygir síðan hart í bakborð, gefur inn og siglir síðan rólega út innsiglinguna.
�?egar Halli Hannesar er búinn að sigla suðureftir og farinn að sjá móta vel fyrir Surtseynni fer báturinn aðeins að stampa. Halli Hannesar slær aðeins af, enda vill hann ekki vekja Ragga strax. En þó svo að það sé búið að slá af stampar Víkkuröstin enþá. �?að mikið að Raggi er byrjaður að rumska ofan í karinu. �??Uuuuuuuu�?�. uuuuuu�?�.�?� heyrist úr karinu. Halli Hannesar heyrir umlið í Ragga og fer að sjá eftir því að hafa sjanghæjað Ragga. �??Andskotinn sjálfur, hvað á ég að gera ef hann verður trylltur þegar hann vaknar,�?� hugsar Halli Hannesar og fer ósjálfrátt að gefa vélinni meira og meira inn. Víkkurröstin er nú komin á sautján sjómílur og stampið orðið óbærilegt inni í brúnni, hvað þá úti á dekki.
Halli lítur aftur með bátnum á karið og sér Ragga alltaf bregða við með hverju stampinu og er dauðhræddur um að Raggi skjótist út í sjó.
Skyndilega kemur stór undiralda og báturinn á þessari þvílíku siglingu er í lausu lofti. Halli lítur á karið og sér Ragga í loftinu með galopin augun og mesta skelfingarsvip sem hann hefur sérð. Báturinn skellur harkalega í sjónum, á meðan er Raggi ennþá í lausu lofti og endar með því að stingast í sjóinn. Halli slær strax af, tekur létta sextíu gráðu beygju í bakborða og síðan hundrað og áttatíu í stjórnborða og sér þá Ragga buslandi fyrir framan stefnið.
�??AAAAAAAAAAAAA HJÁLP�?�.. AAAAAAA�?�.�?� öskrar Raggi. Halli er hálf skelkaður en nær að sigla með stjórnborðsíðuna af honum og nær að toga Ragga um borð.
Raggi stendur skjálfandi á dekkinu og segir: �??Ha.. ha.. ha.. Halli Ha.. ha.. ha.. Hannesar�?� hv.. hv.. hv.. hvað ee.. ee.. ert þ.. þ.. þ.. þú aa.. aa.. að ge.. ge.. ge..ra hj.. hj.. hér?�?� reiðist síðan svolítið, hættir að stama og segir: �??OG HVAÐ Í ANDSKOTANUM ER �?G AÐ GERA H�?RNA, HUNDBLAUTUR?�?�
Halli verður mjög hræddur enda Raggi búinn að kreppa báða hnefa. �??Uuuu�?�. Við ákváðum nokkrir trillukarlar að sjanghæja þér og fara með þig í róður til að sýna þér að við trillukarlar erum eingir aumingjar. �?að var ekkert planað handa þér í sjóinn, það var alveg óvart. Fyrirgefðu vinur,�?� segir Halli Hannesar og tekur í bolinn hans Ragga, snýr upp á hann svo sjórinn skvettist á dekkið. �??Hva.. þú ert ekkert svo blautur.�?�
Raggi horfir á Halla og glottir og segir: �??Áttu auka föt handa mér og stakk?�?�.
�??Uuuu.. já,�?� segir Halli Hannesar.
�??Náðu í þau og reynum á þetta�?�.
Korteri síðar er Víkkurröstin kom sunnan fyrir Surtsey og þeir búnir að slaka veiðarfærum. Halli Hannesar er þekkt aflakló og því erfiður dagur fyrir höndum. Fyrsta rúllan byrjaði að pípa og dagurinn þá byrjaður og stóð ekki á aflabrögðunum, þriggja til fimm kílóa þorskar á hverjum krók. Komu upp í röð og fjölda eins og grúbbpíur Mömmustrákanna á �?jóðhátíðinni 1992. Halli Hannesar voru búnir að vera í mokinu í tæpan klukkutíma þegar Halli horfir á Ragga sem vinnur eins og hann sé með eigið líf að veði og segir: �??Ertu ekkert þunnur Raggi?�?�
Raggi tekur upp stærðar þorsk, slítur úr honum krókinn og segir: �??Ha ha, þunnur? Nei karlinn minn, ég verð ekki þunnur eftir einn dag, verð stundum slappur eftir þrjátíu daga á Tælandi en aldrei á Íslandi. Höldum áfram, fyllum dallinn�?�.
Halli Hannesar þorði ekki öðru en að halda áfram og áfram héldu þeir. �?angað til ekki var laust pláss á dekkinu. �?eir voru búnir að fylla Víkkuröstina á mettíma. Hefst þá heimstímið. �?að eru ekki allir sem eru þeirrar gæfu aðnjótandi að geta sagst hafa fundið tilfinninguna að sigla í land með fullan bát eftir erfiðan dag. En það gátu þeir gert þennan dag.
�?egar þeim vantaði tæpar tuttugu mínútúr í innsiglinuna kom Halli Hannesar útá dekk þar sem Raggi var að smúla eftir blóðbaðið. Í sitthvorri höndinni hafði hann kók og Prins Póló, hann réttir Ragga Kók og Prins úr hægri hendinni og segir við hann: �??�?ú ert Togari, það sannaðist í dag. �?vílíkt heljarmenni og mátt vera stoltur af sjálfum þér. Hérna fáðu þér kók og prins�?�.
Raggi tekur við veigunum, réttir honum þær síðan aftur og segir: �??Takk fyrir það vinur, en þú þarft ekki að þakka mér fyrir með gotteríi. �?g er hættur í svona óhollustu, gosi og súkkulaði.�?� Heldur síðan áfram að smúla þangað til að þeir koma inn fyrir innsiglinu og fer þá að gera tilbúið fyrir löndun.
Löndunin tók sinn tíma enda voru þeir með um sex tonn. �?egar búið var að landa og Halli Hannesar byrjaði að þrífa bátinn kallar Raggi: �??Hvað er klukkan?�?�
Halli brettir upp vinstri ermina og segir: �??Fimm mínútur í fimm�?�
�??Heyrðu ég þarf að drífa mig. �?g á að vera mættur á æfingu klukkan fimm.�?�
�??�?fingu?�?� segir Halli hissa.
�??Já, ef ég er ekki mættur á réttum tíma, þá drepur Jóhanna Jóhanns mig. �?g á að fara í mælingu.�?�
�??Já ekki málið. �?ú verður að gefa mér upp kennitölu og bankanúmer, ég verð að leggja inna á þig fyrir hjálpina,�?� segir Halli.
�??Ha ha, nei karlinn minn, mín var ánægjan. �?etta var bara góð æfing, við sjáumst,�?� sagði Raggi og byrjaði að skokka bryggjuna í lánssjóstaknum frá Halla í allt of stórum stígvélum í áttina af Hressó.
Halli Hannesar heldur áfram að smúla, lítur síðan upp á bryggju á Braga Steingríms og Gogga Gellu. �??Jæja, hvar er þessi togari? Er hann ennþá sofandi frammí?�?� spyr Goggi, hnippir síðan í Braga Steingríms þar sem þeir hlægja báðir.
�??Nei, því miður. Hann er farinn á einhverja mælingar æfingu í Hressó! �?g hef aldrei áður séð annan eins dugnað, hvað þá eftir fyllerí,�?� segir Halli Hannesar og vissi varla hvað hann átti að segja meira.
�??Fór hann á hvað? �?fingu?�?� spyr Bragi Steingríms. �??Meira að segja Sigurður Bragason sonur minn fór ekki á handboltaæfingar eftir svona dag. �?ó var hann fremsti handboltamaður Vestmannaeyja í fimmtán ár.�?�
Goggi tekur af sér sólgleraugun, þurrkara þau í bolnum sínum, setur þau hægt aftur á andlitið horfir á sólina hverfa við sprönguna og segir: �??Hann hefur þetta greinilega í blóði sér.�?�
Á sama tíma er Raggi að opna hurðina í Hressó. Hann lítur upp tröppurnar og sér Jóhönnu Jóhanns með krosslagðar hendur, stappandi hægri löppinni reið á svip.
�??Hvar í andskotanum hefur þú verið Ragnar �?ór? Klukkan er fimm mínútur yfir fimm.�?�
�??Fyrirgefðu, ég var að koma í land. Vorum að koma með sex tonn af þorski á Víkurröstinni og ég er ekki frá því að ég sé að verða pínu þunnur,�?� segir Raggi lafmóður.
�??Raggi minn, ekki svona afsakanir. Síðan er ekkert til sem heitir að vera þunnur. Orðið þunnur var búið til að aumingjum. Ert þú aumingi?�?�
�??Ha? Nei�?� segir Raggi.
�??Drífðu þig upp. Farðu að skokka og komdu svo í mælingu.�?�
�??Já skal gert.�?�
Mælingar Ragga eru eftirfarandi:
25. mars 2014
Kg: 83,8
Cm í mitti: 90
Fitu prósenta: 17%
Nýjasta mæling
16. apríl 2014
Kg: 82,3
Cm í mitti: 85
Fitu prósenta: 14,3%
Frábær árangur og allt stefnir í kjötaðan og tálgaðan töffara. Nú er bara að vona að hann haldi áfram sömu braut og nái sér undir tíu í fituprósentu fyrir sjómannadag.
Áfram Raggi Togari.
Ágúst Halldórsson