Innsýn í �?jóðhátíðarlagið
Jón Jón­son spil­ar þjóðhátíðarlagið í nýju mynd­broti sem rataði á ver­ald­ar­vef­inn í gær og má sjá hér að neðan. �?stir þjóðhátíðar­unn­end­ur ættu þó að halda ró sinni því lagið er enn leynd­ar­mál og er flutn­ing­ur Jóns rit­skoðaður í bak og fyr­ir.
Hörður Grett­is­son, formaður þjóðhátíðar­nefnd­ar, seg­ir lagið vera svo mikið leynd­ar­mál að jafn­vel hann sé ekki bú­inn að heyra það. �??�?eir eru með lagið í stúd­eói að klára að út­setja það og svona svo ég bíð bara al­veg jafn spennt­ur og all­ir aðrir,�?? seg­ir Hörður.
Hann seg­ir al­menn­ing ekki þurfa að ör­vænta enda verði lagið frum­flutt með pompi og prakt um mánaðar­mót­in.
�??Okk­ur finnst Jón vera flott­ur strák­ur, frá­bær tón­list­armaður og góð fyr­ir­mynd,�?? seg­ir Hörður um ástæður þess að Jóni var treyst fyr­ir verk­inu. �??Við höf­um mikla trú á því að hann komi með lag sem muni lifa með hátíðinni næstu árin.�??
Hörður seg­ir sölu á �?jóðhátíð ganga vel og að bestu ferðirn­ar með Herjólfi séu marg­ar hverj­ar þegar upp­seld­ar. �?að er því um að gera að kíkja inn á dal­ur­inn.is og tryggja sér miða en í til­efni 140 ára af­mæl­is hátíðar­inn­ar verður dag­skrá­in með glæsi­leg­asta móti.
Monitor- mbl.is

Nýjustu fréttir

Sterkur lokakafli skilaði ÍBV sigri gegn Selfossi
Emil Tumi sigurvegari í yngri flokki  
Stórum framkvæmdaráfanga að ljúka hjá Vinnslustöðinni
Gildrur notaðar til fiskmerkinga við Vestmannaeyjar
Treg veiði hjá Eyjaskipunum
Gary Phillips og Parkman Cook til ÍBV
Dæluskipið Sebastiano Caboto komið til Eyja
Fyrsti heimaleikurinn – ÍBV fær Selfoss í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.