Háskólalest Háskóla Íslands efnir í dag til vísindaveislu fyrir alla fjölskylduna í Höllinni í Vestmannaeyjum frá kl. 12 til 16. �?ar verður lögð áhersla á lifandi og skemmtilega vísindamiðlun til ungs fólks og litríka dagskrá.
Vestmannaeyjar er annar áfangastaður Háskólalestarinnar í ár. Dagskrá lestarinnar hófst í gær þegar nemendur í elstu bekkjum Grunnskóla Vestmannaeyja sóttu valin námskeið í Háskóla unga fólksins, en valið stóð á milli eðlisfræði, efnafræði, hugmyndasögu, japönsku, Legó-forritunar, stjörnufræði, skapandi stærðfræði og vísindaheimspeki. �?á var enn fremur boðið upp á Biophilia-tónvísindasmiðjur fyrir leikskólabörn og börn í yngstu bekkjum grunnskólans.
Í dag verður svo slegið upp veglegri vísindaveislu í Höllinni í Vestmannaeyjum milli kl. 12 og 16. �?ar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, legósmiðja og ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. �?á taka fulltrúar Fab Lab smiðjunnar í Vestmannaeyjum og �?ekkingarseturs Vestmannaeyja þátt í veislunni.
Hið landsþekkta Sprengjugengi Háskóla Íslands verður einnig á staðnum og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti frá kl. 12.
Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.