Ráðherrafundur EFTA, Fríversl-unarsamtaka Evrópu, verður haldinn í Vestmannaeyjum dagana 22. til 23. júní næstkom-andi. Um er að ræða árlegan fund en gera má ráð fyrir að rúmlega eitt hundrað manns sæki fundinn frá öllum aðildar-ríkjum EFTA, Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein. �?á er einnig von á fulltrúum frá Filippseyjum en áætlað er að EFTA og ráðherra ríkisstjórnar Filippseyja skrifi undir vilja-yfirlýsingu um viðræður um fríverslunarsamning milli EFTA og Filippseyja.
Ráðherrafundir EFTA eru haldnir til skiptis í löndunum fjórum en á Íslandi hefur verið til siðs að halda fundina í Reykjavík og á landsbyggðinni til skiptis. Ráðherrafundur EFTA fór síðast fram í Reykjavík 2010 en hefur auk þess farið fram á Akureyri, Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði. Von er á utanríkisráðherrum Íslands og Liechtenstein og viðskiptaráðherrum Noregs og Sviss, auk þess sem þingmenn og aðilar vinnumarkaðarins frá sömu ríkjum sækja fundinn.
Eyjamaður hjá EFTA
Eyjamaðurinn Martin Eyjólfsson er fastafulltrúi Íslands gagnvart EFTA í Genf en hann mun að sjálfsögðu sækja fundinn. �??Á svona fundum er farið vítt og breitt yfir stöðuna í fríverslunarmálum EFTA-ríkjanna. Hvernig samningaviðræður ganga og hvar skuli bera næst niður. EFTA-ríkin hafa í sameiningu gert 25 fríverslunarsamninga við 36 ríki,�?? sagði Martin þegar hann var spurður út í fundinn.