Saga Huld Helgadóttir skrifaði í dag undir samning hjá ÍBV. Saga Huld ákvað að taka fram skóna á ný eftir pásu frá 2010 en hún var m.a. í liði fyrstu umferðarinnar á vefnum Fótbolti.net, í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni. Í tilkynningu frá ÍBV er haft eftir Sigþóru Guðmundsdóttur, formanns knattspyrnudeildar kvenna að það væri alltaf fagnaðarefni þegar heimastúlkur gerðu samning við sitt uppeldisfélag.