Byggt af miklum metnaði
Fjölmenni var við opnun Eldheima í dag þar sem forseti Íslands og mennta- og menningarmálaráðherra voru á meðal gesta. Safnið Eldheimar sem byggt er utan um húsið númer 10 við Gerðisbraut í hlíðum Eldfells er að öllu leyti einstakt og á eftir að vekja mikla athygli. Vera leiðarvísir um sögu Vestmannaeyja, jarðsögu þeirra, Surtseyjargosið og Heimaeyjargosið 1973 sem er stærsti viðburður hér á landi á síðustu aldar.
Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eldheima bauð gesti velkomna. Elliði Vignisson bæjarstjóri, Illugi Gunnarsson ráðherra og Gerður Sigurðardóttir, sem bjó í húsinu númer 10 þegar ósköpin gengu yfir 1973. Var athyglisvert að hlusta á sögu hennar af atburðum örlaganæturinnar 23. janúar 1973 þegar jörðin rifnaði og gos hófst í aðeins 400 metra fjarlægð frá húsi fjölskyldunnar.
Forseti Íslands, �?lafur Ragnar, lofaði framtakið og það sama gerði Illugi ráðherra. Elliði þakkaði öllum sem komu að byggingu safnsins og sagði framlag ríkisins hafa skipt sköpum. Kristín minntist Sigmunds Jóhannssonar, teiknara með meiru sem var mikill áhugamaður um gossafn.
�?að kom í hlut Gerðar, Elliða, Illuga og �?lafs Ragnars að klippa á borða og opna safnið formlega. Á eftir skoðuðu gestir safnið sem hefur verið byggt af miklum metnaði og er öllum sem að því komu til mikils sóma.
Eldheimar eru alls 2000 fm og lofthæðin er níu metrar. Inni í því miðju er Gerðisbraut 10 og eru útveggirnir nánast heilir. �?að er hægt að skoða húsið frá öllum hliðum en ekki verður farið inn í það. Húsið er látið halda sér eins og það kom undan vikrinum. Má m.a. sjá sófa í stofunni en fleira úr innbúi íbúanna, Gerðar Sigurðardóttur og Guðna heitins �?lafssonar, verður bætt við. Fyrir utan verða snertiskjáir þar sem hægt er að sjá hvernig húsið leit út samkvæmt myndum úr eigu fjölskyldunnar.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.