Stefna E-listans í samgöngumálum skýr
Stefna okkar á E listanum í samgöngumálum er alveg skýr. Við viljum leita allra leiða til þess að bæta samgöngurnar frá því sem þær eru í dag. Við setjum okkur ekki upp á móti því að ný ferja verði smíðuð, en klárlega þarf fyrst að klára lagfæringar á Landeyjahöfn ásamt nauðsynlegum breytingum. Hvort það dugar hins vegar til, verður bara að koma í ljós.
Tek reyndar eftir því að sumir frambjóðendur D listans orða þetta næstum því á sama hátt, sem er nokkuð merkilegt í ljósi þess að á núverandi kjörtímabili hefur meirihlutinn fyrst og fremst talað um að það vanti nýja ferju.
S.l. sumar hlustaði ég á bæjarstjórnarfund þar sem fjallað var um málefni sem er gríðarlega mikilvægt fyrir alla Eyjamenn, en bara ekki eins og meirihlutinn setti það upp. �?ar á ég við tillögu meirihlutans um að bæjarstjórnin mótmælti nýjum veiðigjöldum á útgerðina. Í sjálfu sér er ekkert mál að verja slíkan málflutning, en klárlega er bæjarstjórn Vestmannaeyja ekki í stakk búin til þess að segja til um, hvort að veiðigjöld séu of há eða of lág. Að mínu mati hefði þessi tillaga átt að snúast frekar um tekjuskerðingu bæjarfélagsins vegna þessara veiðigjalda og benda þá t.d. ríkisvaldinu á það og þá kröfu okkar Eyjamanna að nýir skattar á útgerðina, sem klárlega skerða tekjur bæjarfélagsins, ættu að sjálfsögðu að einhverju leiti að minnsta kosti, að skila sér aftur til bæjarfélagsins. Til þess t.d. að minnka niðurskurð til heilbrigðisstofnarinnar og t.d. í frekari fjárframlögum í Landeyjahöfn, að maður tali nú ekki um þetta gríðarlega ósanngjarna gjald sem við Eyjamenn þurfum að borga fyrir það eitt að komast milli lands og Eyja.
Margir hafa spurt mig að undanförnu um það, hvers vegna ég sé að skipta mér af eftir að hafa sagt mig frá allri pólitík og úr þeim flokki sem ég var skráður í. Svar mitt við þessu er afar einfalt. Að mínu mati er þetta einmitt það sem okkur Eyjamanna vantar, fólk sem er að bjóða sig fram til þess að starfa fyrir bæjarfélagið án þess að vera með eitthvað flokks batterí á bak við sig. Að mínu mati hefur klárlega vantað á þessu kjörtímabili þekkingu og reynslu sjómanna í svo mörgum málum, og þá sérstaklega samgöngumálum okkar. Í mínum huga, þá legg ég inn í þetta bæði heiðarleika og dugnað, sem og þann eiginleika að kunna ekki að gefast upp. �?að má í sjálfu sér segja sem svo að ég hafi unnið hörðum höndum í öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur, sennilega alveg frá því að ég var ca. 8-9 ára gamall og hafði vit og getu til þess að setja saman fyrsta gellu vagninn. Margir hafa sagt við mig að með honum hafi ég hafið mína útgerð, sem í dag er orðin 27 ár á eigin bát. Í mínum augum eru tækifæri í öllu, það eina sem þarf er kjarkur til þess að fylgja málum eftir og ég tel mig hafa hann nægan. Ef við á Eyjalistanum fáum nægilega mörg atkvæði, þá mun ég halda áfram að starfa eftir kosningar í nefndum og ráðum bæjarins, í þeim málaflokkum sem ég þekki vel til og þess vegna m.a. er ég í framboði.

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.