200. mark Tryggva
Tryggvi Guðmundsson skoraði 200. deildarmark sitt á ferlinum með KFS í gær þegar liðið lagði Stokkseyri á Helgafellsvelli 9:0. �?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Tryggvi skoraði þrennu í leiknum og hefur nú gert fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum liðsins. Fyrsta mark Tryggva var það 200. á ferlinum en Tryggvi er jafnframt markahæsti leikmaður efstu deildar karla í fótbolta með 131 mark. Auk þess skoraði þessi magnaði markaskorari 62 mörk í sænsku og norsku deildunum. Aðeins tveir Íslendingar hafa skorað fleiri mörk, Vilberg Jónasson 217 og Valdimar K. Sigurðsson 212 og það skyldi aldrei vera nema Tryggvi myndi slá þeim báðum við, ef ekki í sumar þá næsta sumar.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.