ÍBV tvöfaldaði stigafjölda sinn í Pepsídeildinni með því að gera jafntefli gegn �?ór norður á Akureyri en leiknum var að ljúka rétt í þessu. Lokatölur urðu 1:1 en Brynjar Gauti Guðjónsson kom ÍBV yfir á 38. mínútu. Dean Martin fékk svo að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks og því léku Eyjamenn einum færri í seinni hálfleik. Allt leit út fyrir að ÍBV næði að halda forystunni en þegar vallarklukkan sýndi 92 mínútur tókst heimamönnum að jafna metin. Svekkjandi fyrir leikmenn ÍBV en engu að síður jákvætt að ná í stig á útivelli.
Næsti leikur ÍBV verður mánudaginn 9. júní þegar Eyjamenn taka á móti Magnúsi Gylfasyni og lærisveinum hans í Val.