Stórsigur á útivelli hjá stelpunum í gær
Kvennalið ÍBV vann stórsigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ í gær þegar liðin áttust við í 5. umferð Pepsídeildarinnar. ÍBV hafði aðeins unnið einn leik af fyrstu fjórum og sigurinn því mjög kærkominn en staðan í hálfleik var 0:3 ÍBV í vil. Leikurinn fór rólega af stað en Vesna Smiljkovic kom ÍBV yfir á 23. mínútu. Kristín Erna Sigurlásdóttir bætti öðru marki við á 32. mínútu og níu mínútum síðar var Sigríður Lára Garðarsdóttir búinn að koma ÍBV í 0:3. Kristín Erna bætti svo við sínu öðru marki, og þriðja marki ÍBV undir lok leiksins.
ÍBV er því komið með sex stig eftir fimm leiki og er í 7. sæti, með jafn mörg stig og FH, sem er í 8. sæti. Breiðablik er svo í 6. sæti með sjö stig og Selfoss í 5. sæti með níu stig.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.