Komum fram af fullum heilindum gagnvart Kára
Á vefmiðlinum visi. is er viðtal við Kára Kristján Kristjánsson handknattleiksmann og fyrrum leikmann með ÍBV Íþróttafélagi. Í viðtalinu kemur fram hörð gagnrýni á handknattleiksdeildina og er ÍBV m.a. sakað af Kára að stinga hann í bakið og standa ekki við gerða samninga. Fram kemur hjá Kára að viðræður hafi hafist í byrjun maí og að sæst hafi verið á tölur og að hann hafi talið málið í höfn.
Handknattleiksdeild ÍBV Íþróttafélags vill því gera grein fyrir málinu frá sinni hendi.
Viðræður ÍBV og Kára Kristjáns hófust þann 30. apríl sl. ÍBV taldi Kára og telur hann enn vera mjög góðan leikmann og gerði honum því gott tilboð að okkar mati. Kári svaraði því samdægurs og hafnaði því með þeim orðum að menn væru á sitthvorri ströndinni og að annað félag á Íslandi væri í sambandi við hann sem væri að tala allt annað tungumál en við.
Í framhaldi af því óskaði ÍBV eftir tilboði frá Kára og sendi hann á okkur sínar hugmyndir þann 2. maí sl. Við höfnuðum þeim hugmyndum daginn eftir og óskuðum honum alls hins besta.
�?ann 7. maí hafði hljóðið aðeins breyst hjá Kára og sendum við honum því annað tilboð um leið og ítrekað var að ekki yrði farið hærra í fjárhæðum, við réðum einfaldlega ekki við það. �?ví tilboði var ekki tekið og voru síðustu samskipti Kára og ÍBV vegna þessara samningsumleitana þann 8. maí sl. �?ar sem enn bar nokkuð á milli og ekkert heyrðist í Kára í rúmar fimm vikur, þó svo að við fréttum af honum á Eyjunni Fögru á þessum tíma, gerðum við ráð fyrir að hann væri einfaldlega að ræða við önnur lið eins og hann tók fram að hefðu verið í sambandi við sig. �?annig ganga þessi mál fyrir sig hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við brugðust við því með því að leita annað enda annað ekki í boði að okkar mati.
Við hörmum þær ásakanir sem beinast að handknattleiksdeild ÍBV. �?ær eru á engum rökum reistar og honum ósæmilegar, enda komum við fram við Kára af fullum heilindum. Við höfðum bara ekki það fjármagn sem til þurfti.
Kára óskum við alls hins besta og velfarnaðar í framtíðinni.

Nýjustu fréttir

Aðalfundur krabbavarnar í gær
Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?
Íþróttamaður mánaðarins – Haukur Leó
Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar
Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA
Árni Sigfússon – Um Eyjagöng
Bjartsýni á framtíð Eyjanna á erfiðum tímum
Marsralli um það bil að ljúka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.