Verðskuldaður og uppörvandi sigur
Fyrsti sigur ÍBV í sumar í Pepsídeild karla kom loksins í gærkvöldi, í 10. umferð deildarinnar. Jón �?skar �?órhallsson er grjótharður stuðningsmaður ÍBV og hann var mættur til Keflavíkur í gær að styðja við bakið á sínum mönnum. Hann skrifaði eftirfarandi línur á síðu stuðningsmanna ÍBV á facebook:
�?að var ekki mikil bjartsýnin í ÍBV hjartanu þegar maður mætti á Nettóvöllinn í Keflavík í gær, leiðindarok, sigurlaust lið og Keflvíkingar bara búnir að tapa einum leik. Fáir stuðningsmenn ÍBV voru mættir á völlinn og höfðum við okkur lítið í frammi í leiknum. �?etta var eins dauf byrjun á leik og hægt var að hugsa sér. Inni á vellinum voru hinsvegar 11 drengir sem ætluðu ekki að gefa tommu eftir og voru þeir mun sterkari og spiluðu mjög vel allan fyrri hálfleikinn. Erfiðasti andstæðingurinn í fyrri hálfleik var óstabíll dómari hálfleiksins, Erlendur Eiríksson sem dæmdi á allan fjandann hjá ÍBV en saug örugglega flautuna þegar Keflvíkingar brutu af sér. Aukaspyrna í uppbótartíma fyrri hálfleiks var gefins og Keflvíkingar óverðskuldað yfir í hálfleik. Slík var deyfðin í hálfleik að vallarþuli mistókst að fá sjálfboðaliða úr hópi stuðningsmanna ÍBV gegn stuðningsmanni Keflavíkur til að keppa um að skjóta í slánna á einu markinu og vinna pizzaveislu. Við stuðningsmenn ÍBV steinþögðum allflest bara áfram og biðum átekta frá okkar mönnum í síðari hálfleik. Ef menn héldu að þessir 11 strákar væru búnir að gefast upp, þá voru engin merki um það í síðari hálfleik og var frekjan í þeim þvílík að það var eiginlega ekki hægt annað en að uppskera. Frábær innkoma frá Atla Fannari var það sem vantaði uppá að flóðgáttirnar opnuðust svo liðið fengi það sem það átti skilið út úr þessum leik, sem voru þrjú stig og ekkert minna en það. �?etta var mjög verðskuldaður og uppörvandi sigur hjá okkar mönnum og vil ég hvetja stuðningsmenn til að mæta vel á leiki liðsins á næstunni, það mun verða þess virði. Áfram ÍBV !

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.