Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri DV fer mikinn í grein sem hann ritar í dag. Sérstaklega er honum uppsigað við Elliða Vignisson, bæjarstjóra. Um hann segir Ingi Freyr: �??Elliði Vignisson er langt frá því að vera heimskur en hann talar stundum eins og hann sé vanviti. Íslensk örþjóð má alls ekki við því að eiga svona stjórnmálamenn.�??
�?á lýsir Ingi Freyr skoðun sinni á Eyjum með þessum orðum: �??Og það er bara nákvæmlega ekkert sérstakt við Vestmannaeyjar – nema kannski þessi fáránlegi heimahagarembingur og stolt sem birtist vel í orðum bæjarstjórans og sprang, Pollamót og �?jóðhátíð. Vestmannaeyjar eru menningarlegt núll að því leyti að það er ekkert sem aðgreinir menningu þeirra frá öðrum sjávarplássum víðs vegar um landið. Hvaðan kemur þessi rembingur og þetta útbelgda stolt Eyjamanna eins og Elliða, misskilningurinn um sérstöðu og æðra vægi? �?etta er bara eitt bæjarfélag af mörgum á Íslandi þar sem fiskur er veiddur og veiddur vel; Eyjamenn eiga nokkur stór útgerðarfyrirtæki sem hagnast yfirleitt ríflega og geta greitt mikla skatta og starfsmönnum sínum há laun. �?að er flott: Eyjamenn eru duglegir; Vestmannaeyjar eru traustur hluti af íslenska efnahagskerfinu og bæjarfélagið leggur sitt af mörkum til samfélagsins, ríkisins Íslands. Enginn tekur það frá þeim: �?eir fiska vel – Eyjar eru ein af verstöðvum Íslands.�??
Og þetta er ekki búið hjá Inga Frey: �??Elliði elur á heimsku og segir það sem hann heldur að einhverjir Eyjamenn vilji heyra: Við erum duglegir en aðrir eru latir; við búum til peninga og borgum en aðrir lifa á okkur. Við erum hýslar en þið eruð sníklar. �?að er með svona Eyjaraupi sem Elliði nær í hæstu hæðir í kosningum í sveitarfélaginu – nærri 3/4 kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Tal hans er systir þjóðernishyggjunnar og er viðlíka rasískt og borulegt: Hann ber fyrir sig Eyjahyggju – fagurgala um sérstöðu og styrk Vestmannaeyinga í samanburði við annað fólk á Íslandi.�??
dv.is