Goslokanefnd hefur ákveðið að færa dagskrá barnaskemmtunar Goslokahátíðarinnar inn í sal 2 í Íþróttamiðstöðinni. Tímasetningar og dagskrárliðir halda sér annars að öllu leyti, aðeins staðsetningunni hefur verið breytt. Eins og áður hefur komið fram hefur veðrið verið heldur leiðinlegt í Eyjum, mikill vindur sem fór mest í 33 metra á sekúndu á Stórhöfða. Hátíðartjaldið á Skipasandi, sem m.a. átti að nota fyrir barnadagskrána, lét undan þannig að kalla þurfti út Björgunarfélag Vestmannaeyja, til að taka tjaldið niður.