Erill helst að frétta
Nokkur erill var hjá lögreglu í liðinni viku enda Goslokahátíð haldin um helgina. Fór hátíðin fram með ágætum og engin alvarleg mál sem upp komu. Eitthvað var þó um pústra en engar kærur liggja fyrir. Nokkuð var um það að lögreglan þurfti að aðstoða fólk til síns heima sökum ölvunarástands þess.
Eitt fíkniefnamál kom upp um helgina en um var að ræða fíkniefni sem fundust um borð í Herjólfi þegar verið var að þrífa skipið. Er þarna um að ræða lítisháttar af kannabisefnum.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið en um er að ræða rúðubrot í Vosbúð v/Strandveg. Talið er að rúðan hafi verið brotin aðfaranótt 5. júlí sl. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um það eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Undir morgun þann 6. júlí sl. sáu lögreglumenn í eftirliti hvar þrjú ungmenni voru inni á útisvæðinu við sundlaugina. Var þeim gert að yfirgefa svæðið en ekki liggur fyrir kæra vegna atviksins.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur í vikunni. �?á liggur fyrir kæra vegna aksturs gegn rauðu ljósi, akstur án þess að hafa öryggisbeltið spennt og ein kæra vegna ólöglegrar lagningar ökutækis.
Fjögur umferðaróhapp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku en í öllum tilvikum var um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.