Vinnustaðasamningar og friður á vinnumarkaði
Hlaðmenn á Keflavíkurflugvelli hækkuðu í launum um 9.700 kr. á mánuði en flugstjórar um 80.000 kr.
�?friður á vinnumarkaði, kjaradeilur, verkföll og lagasetningar hafa verið ofarlega í umræðunni síðastliðna mánuði. �?að hefur gætt óþols félagsmanna ASI eftir kjarabótum, sem ég tel að nokkrar greinar atvinnulífsins geti staðið, undir ekki síst útflutningsreinarnar. En samflot í kjarasamningum hefur komið í veg fyrir að þær greinar sem geta staðið undir hærri launum hafi samið um launakjör umfram lágmark samflotsins. SA og ASÍ fóru af staða með góðar væntingar um 2,7% launahækkanir, eða 9.700 kr. á mánuði sem tryggja átti nokkra kjarabót og stöðugleika í þjóðfélaginu með aðgerðarpakka frá ríkisstjórninni. Í stuttu máli þá fóru þeir samningar í gegn þrátt fyrir nokkra andstöðu, sérstaklega fiskvinnslufólks. Síðan hefur hverri launadeilunni af annarri lokið með tugþúsunda hækkunum, 70-80 þús. króna launahækkanir sem gjarnan eru skýrðar með hagræðingu, breyttu vinnu- og vaktafyrirkomulagi bæði á almenna markaðinum og þeim opinbera. Hluti þeirra samninga hafa algjörlega gengið á svig við þau fyrirheit sem lægst launaða fólkið var tilbúið að axla ábyrgð á. Hlaðmenn á Keflavíkurflugvelli hækkuðu í launum um 9.700 kr. á mánuði en flugstjórar um 80.000 kr. �?að ver ekki tífaldur munur á launahækkunum sem farið var með af stað í kjarasamningum á vinnumarkaði, en það er niðurstaðan.
�?að er mikilvægt að ná hagræðingu fram í kjarasamningum, en þá á það að ná til allra sem taka á sig og eru þátttakendur í hagræðingu. Í fiskvinnslu, sérstaklega uppsjávarveiðum hefur orðið gríðarleg verðmætaaukning vegna falls krónunnar, hagræðingar, fækkun starfsfólks og framleiðniaukningar síðustu ár, sem hafa fært fyrirtækjunum miklar tekjur og eigendum góðan arð. �?að er mikilvægt að undirstöðuatvinnugreinarnar búi við góðan hagnað og hafi getu til fjárfestinga og taki virkan þátt í samfélagslegri ábyrgð. Tölur um 30-50% lækkun launakostnaðar í fiskvinnslu af framleiðsluverðmæti sl. 5-7 ár er staðreynd án þess að það hafi skilað sér í launaumslagið hjá verkafólki. �?að sama má segja um aðrar útflutningsgreinar eins og ferðaþjónustuna. Ef það á endalaust að stíga ofaná lægst launaða fólkið í þjóðfélaginu sem stendur undir mestu verðmætasköpuninni, í fiskvinnslu, ferðaþjónustu og annarri gjaldeyrisskapandi starfsemi verður enginn friður á vinnumarkaði. Stóriðjan er ekki með láglaunastefnu og greiðir tvöföld laun á við aðrar útflutningsgreinar.
Sem þingmaður hef ég tekið þátt í að greiða atkvæði með lögum á tvær vinnudeilur. �?að voru þung spor, en stigin af ábyrgð sem mér fannst verjandi við þær aðstæður. En við verðum að finna nýjar leiðir til árangurs. �?að hefur þó komið í ljós að lögin um Herjólfsdeiluna voru mistök að því marki að ekki var gert ráð fyrir kjaradómi ef deiluaðilar næðu ekki saman fyrir ákveðinn tíma eins og í flugmannadeilunni. �?rátt fyrir lög og frestun aðgerða gengur hvorki né rekur í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi og verulegar blikur á lofti í þeirri deilu. Enn og aftur hvet ég deiluaðila til að ná samningum því ef sumarið dugar ekki til að ná fram kjarasamningi þá gerist það ekki í haust þegar ferðamannatíminn verður liðinn.
Við verðum að ná almennri sátt á vinnumarkaði, hjá því opinbera á almenna markaðinum og þar verða allir að koma að borðinu. Vinnustaðasamningar hafa gefið góða raun eins og í stóriðjunni. �?ar hefur lengi verið góður friður og þeir samningar hafa tryggt mun betri laun en á almennt á vinnumarkaðinum og ólíkar starfsstéttir náð að tryggja sameiginlega hagsmuni sína og fyrirtækjanna þar sem tekið er tillit til ábyrgðar, menntunar og stöðu í fyrirtækinu. Fyrirtæki á borð við Herjólf og Icelandair eru vinnustaðir sem ættu að gera slíka samning.
Á Íslandi eru tækifæri framtíðarinnar í sjálfbærri nýtingu orkunnar, fegurðar landsins og auðlindum til sjávar og sveita. Erlendar þjóðir og ferðamenn horfa öfundaraugum á þessar auðlindir. Ferskleiki og hreinleiki íslenska fisksins og landbúnaðarafurða eru eftirsótt gæði eins og frumkvöðlastafsemin og hátækniiðnaðurinn, sem ferðamenn vilja sjá í sínu rétta umhverfi og hvernig við búum í þessu hreina og fallega landi. �?að er í okkar höndum að skapa og viðhalda því trausti og stöðugleika sem fær fólk til að flykkjast hingað. �?að gerist með sátt á vinnumarkaði.
�?rátt fyrir að verkfallsvopn hverrar stéttar sé grundvöllur verkalýðsbaráttunnar þá verðum við að finna leiðir til þess að það vopn sé aðeins notað þegar allt um þrýtur og þar er ábyrgðin beggja viðsemjanda. Á síðustu mánuðum höfum við öll gert okkur grein fyrir því að þessi staða er óviðunandi og við verðum að finna lausn. Lausn sem felur í sér betri kaupmátt og rekstraröryggi fyrir atvinnulífið það eru sameiginlegu hagsmunirnir sem allir geta varið.
Ásmundur Friðriksson alþingismaður

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.