Fimm marka sigur hjá KFS
KFS er komið með tíu stiga forskot í B-riðli 4. deildar eftir 6:1 stórsigur á KB í dag. Leikur liðanna fór fram á �?órsvelli en markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson skoraði þrennu í leiknum. Hin mörkin gerðu þeir Stefán Björn Hauksson (2) og Guðjón �?lafsson en gestirnir úr KB jöfnuðu 1:1 um miðjan fyrri hálfleikinn. Ingólfur Einisson lagði upp þrjú mörk fyrir KFS en í liðið vantaði framherjann eldsnögga Gauta �?orvarðarson.
Eyjaliðið er sem fyrr á toppi B-riðils með 28 stig, tíu stigum meira en Vængir Júpíters, sem eru í öðru sæti riðilsins en Vængirnir eiga reyndar leik til góða. KFS á eftir fjóra leiki í riðlakeppninni en tvö efstu liðin fara í úrslitin. �?að virðist því fátt geta komið í veg fyrir að KFS fari í úrslitakeppni 4. deildar.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.