Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason gerði sér ferð til Eyja um helgina og skrifar stuttan pistil um ferðina á
bloggsíðu sína. Egill fékk sér að borða á veitingastaðnum Slippurinn og mærir staðinn í hástert, eins og sjá má hér að neðan.
Bestu veitingastaðir Íslands eru ekki í Reykjavík
�??Tímar hafa breyst. �?egar ég var strákur að vinna í Vestmannaeyjum var ekki hægt að fá mat nema í heimahúsum eða í mötuneytum frystihúsa. Nú er fjöldi góðra veitingastaða í Eyjum,�?? skrifar Egill.
�??Slippurinn er í húsi þar sem áður var vélsmiðjan Magni. Hráleika húsnæðisins hefur verið haldið, hönnun staðarins er einfaldlega frábær, passar fullkomlega inn í bygginguna og rímar við höfnina. Maturinn er lókal �?? fiskur og aftur fiskur �?? og verðið er sanngjarnt. Eitthvað annað en hið fráleita verð sem tíðkast á snobbuðustu stöðunum í bænum. Mikið er skemmtilegt þegar bestu veitingastaðir Íslands eru ekki lengur í Reykjavík �?? nei, í rauninni langt frá borginni. Slippurinn er í hópi minna uppáhaldveitingastaða á Íslandi �?? ásamt með Tjöruhúsinu á Ísafirði. �?að er full ástæða til að gera sér sérferð til Eyja til að borða á Slippnum �?? bara muna að panta borð.�??