Fastagesturinn
Pervisinn fastagestur á Enska barnum í Austurstræti sat í sínu hefðbundna sæti eitt kvöldið í vikunni og öll önnur sæti voru setin líka. �?á kom inn spengilegur og vöðvastæltur maður sem sýnilega var í góðri þjálfun. Hann gekk að fastagestinumm og heimtaði að hann stæði upp og léti eftir sætið, en sá fyrrnefndi neitaði. Sá vöðvastælti sló fastagestinn eldsnöggt og sagði; þetta var shotokan-karate högg frá Kóreu. Fastagesturinn stóð upp, hristi hausinn en settist svo niður aftur.
�?á sparkaði sá vöðvastælti í hann og sagði, þetta var kung-fu spark frá Kína. Fastagesturinn stóð aftur upp, hristi sig og settist svo niður aftur.
�?á tók sá vöðvastælti sig til, stökk upp í loftið, sparkaði með tilþrifum í fastagestinn og sagði, þetta var karate-hringspark frá Japan. Fastagesturinn stóð þá upp, hristi hausinn og gekk út.
Sá vöðvastælti settist niður, en á að giska 45 mínútum síðar gekk fastagesturinn inn og rakleiðis að þessum vöðvastælta. �?rlítill þytur heyrðist og skyndilega lá sá vöðvastælti rotaður í gólfinu. Fastagesturinn settist þá í sætið sitt og sagði; þetta var kúbein frá BYKO!

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.