Heilsuvernd og fróðlegar upplýsingar úr ársskýrslu Ískrár
Ískrá er tölvuskráningarkerfi fyrir skólahjúkrun sem nú er komið um allt land nema hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Margs konar upplýsingar eru skráðar í gagnagrunn sem gefur tækifæri til að bera saman þætti varðandi heilsu og líðan skólabarna víðs vegar á landinu. �?arna eru færðar inn upplýsingar um verk sem mælt er með að skjólahjúkrunarfræðingar famkvæmi á landsvísu. �?ar má nefna bólusetningar, hæð og þyngd, lífstíll og líðan og margs konar fræðslu. 6H- heilsunnar er fróðlegt og skemmtilegt fræðsluefni sem skólahjúkrunarfræðingar nota. �?ví er skipt í Hollustu, Hreinlæti, Hamingju, Hvíld, Hugrekki og Hreyfingu (6H) og er fræðsla úr einum eða fleiri liðum í hverjum árgangi Grunnskólans. Nánar á 6h.is
Í haust kom út ársskýrsla Ískrár fyrir síðasta skólaár og er þar margt fróðlegt að finna.
Hvernig erum við að standa okkur?
Skýrslur bárust frá 14 Heilbrigðisstofnunum. Til fróðleiks og gamans er gott að sjá hvernig við erum að standa okkur miðað við aðra. Sumt er mjög gott hjá okkur, annað þarf að bæta. Í þessari grein er Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum skammstöfuð með HSV. Ekki er leyfilegt að nefna aðrar stofnanir með nafni sökum nafnleyndar en við teljum upp hvar í röðinni af þessum fjórtán við erum.
Við fáum fullt hús stiga í Bólusetningum í 7. og 9. bekk , 98-100% barna fullbólusett sem er mjög gott.
Í 1. stigs forvörnum, skyldufræðslu til nemenda (6H �??efnið) erum við með mjög góða útkomu í öllum árgöngum. �?að þýðir að allir árgangar fengu þá fræðslu sem ætlast er til.
Í 1., 4., 7. og 9. bekk koma nemendur til skoðunar og viðtals. �?á er gert svokallað lífstílsmat, markmiðið með lífstílsmati er m.a. að styrkja vitund nemenda um eigin heilsu, lífstíl og líðan. Um 10.300 nemendur á landinu öllu mátu heilsu sína og var um helmingur nemenda sem mat hana mjög góða. Hjá okkur var HSV með 50% eins og landsmeðaltal.
Hreyfing barna:
Hlutfall nemenda sem komu gangandi eða á hjóli í skólann er að meðaltali 60% á landinu en hjá HSV 50%.
Hlutfall barna í 1. og 4. bekk sem æfa íþróttir eða leika sér oft úti er að meðaltali 88% á landinu en hjá okkur 85%.
Hlutfall nemenda í 7. og 9. bekk sem æfa íþróttir 2-3 svar í viku eða oftar er að meðaltali 87% en hjá okkur 91% sem er mjög gott!
Morgunmatur:
Hlutfall barna í 1., 4., 7. og 9. bekk sem borða morgunmat er landsmeðaltal 90% en hjá okkur er það 85%. Stúlkur sleppa morgunmat oftar en drengir og eldri nemendur sleppa frekar morgunmat.
Lýsi:
Að meðaltali voru 46% barnanna sem tóku lýsi, hjá okkur 49%. Lýsistaka dvínar með hækkandi aldri en ekki var mikill munur á milli kynja.

Sjálfsmynd barna:
Hlutfall íslenskra skólabarna í 4. 7. og 9. bekk sem eru mjög sátt og sátt við sjálfan sig er um 85%: Hjá okkur eru 80% stúlkna í 9. bekk mjög sáttar eða sáttar við sjálfan sig en hjá drengjum í 9. bekk eru 95% drengja mjög sáttir eða sáttir við sjálfan sig sem setur okkur í þriðja besta sæti yfir landið. Við eigum drengi með sjálfstraust!
Líðan í skóla:
Hlutfall nemenda í 1., 4., 7. og 9. bekk sem líður vel í skólanum: Hjá okkur eru um 94% sem tjá sig um að líða vel í skólanum, það setur okkur í þriðja efsta sæti yfir landið, sem er gott.
Tannvernd:
Í 1. bekk er spurt, hver burstaði tennurnar þínar í gærkvöldi? Svarmöguleikar: Foreldri, barn eða burstaði ekki . Meðaltalið yfir landið var 65% sem burstaði og best er að foreldrar bursti og aðstoði börnin til 10 ára aldurs. Hér vorum við í neðsta sæti yfir landið með 38% þar sem foreldra aðstoðuðu. Árangursviðmið: Allir bursti 2x á dag og foreldrar aðstoði!
Hæð og þyngd:
Mælt er í 1., 4., 7. og 9. bekk. Ofþyngd og offita: Hlutfall stúlkna yfir kjörþyngd er að meðaltali yfir landið 20%. Hjá okkur 34% og það setur okkur í efsta sæti yfir landið, við eigum þyngstu stúlkurnar. Hjá drengjum er meðaltalið líka 20% og þar erum við með 29% sem setur okkur í næst efsta sæti, við eigum næst þyngstu drengina á landinu. �?arna er verk að vinna!

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.