Rætt um að ríkið haldi Baldri áfram hér á landi
Ný flétta er að koma upp í ferjumálum landsmanna sem gengur út á að hið opinbera kaupi gamla Baldur, sem stendur til að selja úr landi og noti hann til að leysa af Breiðafjarðar- Vestmannaeyja- og Hríseyjarferjurnar þegar þær þurfa að fara í slipp eða bila.
Söluverð Baldurs er umþaðbil hundrað milljónir króna, eða aðeins brot af þeirri upphæð sem það myndi kosta að leigja erlendar ferjur í þessu verkefni á ári, að mati þeirra, sem eru að skoða málið. �?á mun nýi Baldur, sem kemur til landsins eftir nokkra daga ekki geta siglt inn í Landeyjahöfn vegna djúpristu, þannig að hann mun ekki getað hlaupið í skarðið fyrir Herjólf eins og gamli Baldur hefur gert.
�?að þyrfti því að leigja erlenda ferju í það til að halda uppi siglingum til Landeyjahafnar sem nú þykir eini raunhæfi samgöngumátinn nema í undantekningum vegna óveðurs.
Fréttastofunni er kunnugt um að farið sé að skoða þessa hugmynd óformlega á æðri stöðum í kerfinu, en þar vill engin tjá sig að svo stöddu.
Annars er það að frétta af ferjumálum, að Herjjólfur var sjósettur úr sænskri skipasmíðastöð í gær þar sem meðal annars voru gerðar endurbætur á skrokknum til að gera skipið rásvissara í innsiglingunni til Landeyjahafnar. Skipið er væntanelgt til Eyja undir helgina. �?á er verfiðð að ferðbúa nýja Baldur í Noregi, efitr að innanríkisráðuneytið ógilti bann siglingastofnunar á innflutning á skipinu. Að óbreyttu á gamli Baldur þá að sigla til nýrra kaupenda á Grænhöfðaeyjum, nema að fyrrnefndri hugmynd verði hrint í framkvæmd.
visir.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.