Vilja byggja 120 herbergja hótel
H-Eyjar ehf hefur ítrekað óskir sínar um byggingu 120 herbergja hótels á þeirri lóð sem varð ofan á í íbúakosningu vorið 2013. �?etta kemur fram í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja en svæðið sem um er rætt, er svæðið ofan við Skanssvæðið. �??Ráðið vill árétta við bréfritara að það svæði sem varð ofaná í íbúakosningu er á hverfisverndarsvæði H-4 og heimilar ekki byggingar skv. ákvæðum svæðisverndar gildandi aðalskipulags. Breytt landnýting til samræmis við íbúakosningu kallar á breytingar á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag. Verði ráðist í slíka vinnu verða lóðir í kjölfarið auglýstar í samræmi við meginreglu sveitarfélagsins,�?? segir í svari ráðsins.
Vandræðaleg íbúakosning
H-Eyjar ehf tók á sínum tíma við undirbúningi vegna byggingu hótels í Hásteinsgryfju. Ekkert varð að byggingu hótelsins eftir íbúakosningu um staðsetningu hótelsins. Aftur stóð Vestmannaeyjabær fyrir íbúakosningu, eða íbúakönnun eins og fram kom í auglýsingu, en fyrir nákvæmlega einu ári voru fimm staðir auglýstir sem þóttu fýsilegir fyrir 120 herbergja hótel og ákvað Vestmannaeyjabær að íbúar myndu kjósa um hvaða staður þætti heppilegastur. Málið var reyndar allt hið vandræðalegasta fyrir Vestmannaeyjabæ, því sá staður sem hlaut flest atkvæði eða 35,75% var svæðið sem H-Eyjar ehf. sækir um, fyrir ofan Skanssvæðið. Eftir að niðurstöður könnunarinnar lágu fyrir var ekki lengur talað um könnun vegna hótelssvæðis, heldur könnun þar sem kannað var hvaða svæði þátttakendur töldu henta best til frekari uppbyggingu ferðaþjónustu, eins loðið og það er nú. Næst flest atkvæði fékk Fiskiðjureiturinn, 33,52%, Löngulág fékk 18,99% atkvæða, Eldheimar 6,7% og 1,4% töldu engan af þessum kostum fýsilegan.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn – tökum samtalið
Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026
Hátt í 50 metrar á Stórhöfða
Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.