Agnar Smári syngur inn gleðina hjá ÍBV
Íslandsmeistarar ÍBV mæta nýliðum Aftureldingar í Mosfellsbæ í dag í Olísdeild karla í handbolta. Eyjaliðið er nú í lokaundirbúningi fyrir leikinn en fyrr í dag var haldinn töflufundur, eins og yfirleitt er gert fyrir leiki. Agnar Smári Jónsson, hægri skytta liðsins byrjaði fundinn með �??góðri�?? upphitun þegar hann tók lagið í hátalarakerfi salarins þar sem fundurinn fór fram. Ekki verður lagður dómur á það hér hversu góður söngurinn var, betra að lesendur leggi mat á það sjálfir. En vonandi kveikir söngur Agnars Smára upp eldmóðinn í lið ÍBV sem var langt frá sínu besta í síðasta leik. Nýliðarnir hafa farið vel af stað, hafa unnið fyrstu tvo leiki sína á meðan ÍBV hefur gert jafntefli og tapað. Eyjamenn eiga ekki góðar minningar úr íþróttahúsinu í Mosfellsbæ enda tapaði liðið í 8-liða úrslitum bikarsins fyrir Aftureldingu á síðasta tímabili. Leikur liðanna hefst klukkan 15:00.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.