Töframaðurinn Einar Mikael á leið til Eyja
Einar Mikael töframaður ásamt Viktoríu töfrakonu, eru að undirbúa ferð um Suðurlandi með fjölskyldusýningu. Verða þau í Höllinni í Eyjum 31. október. Eyjafréttir töfruðu fram símtal við Einar og leituðu frétta af högum töframannsins:
Eru að vinna að nýjum sjónvarpsþáttum?
�??Já, ég er búinn að vera taka upp þætti sem heita Töfrahetjurnar sem verða sýndir á Stöð 2 í haust. �?etta eru frábærir fjölskylduþættir sem fjalla um töfrabrögð og sjónhverfingar. Í þáttunum fáum við að kynnast hæfileikaríkum töfradýrum sem geta gert ótrúlega hluti og fáum einnig að fylgjumst við með tveimur ungum töfrahetjum.
Er það rétt að þú náðir að þjálfa upp hrafn fyrir þættina?
�??�?að passar. Hrafninn heitir �?ór og það er alveg ótrúlegt en satt þá náði ég að kenna honum nokkur töfrabrögð. Hann kann að draga spil, sveifla töfrasprota og finna faldna hluti.�?etta eru alveg ótrúlega gáfuð dýr og hann var mjög snöggur að læra. Maður þarf samt að passa sig á þeim því þeir eru mjög glysgjarnir og rosalega stríðnir..´´

Hvað geturðu sagt okkur um sýninguna?
�??Sýningin er troðfull af flottum sjónhverfingum og nýjum atriðum sem hafa aldrei sést áður á Íslandi. Viktoría töfrakona verður með mér en hún er fyrsta töfrakonan á Íslandi og er alveg rammgöldrótt. �?að er mikið búið verið að spurja mig hvenær ég kæmi aftur austur og mig hlakkar rosalega til að koma og leyfa öllum að upplifa ógleymanlega kvöldstund´´
Hver er þessi Viktoría?
�??Viktoría er fyrsta töfrakona Íslands. Hún kann margt fyrir sér í töfrabrögðum og er búinn að taka þátt í mörgum sýningum með mér um allt land. Töfrabrögð eru ekki bara fyrir stráka og finnst mér mikilvægt að allar íslenskar stelpur geti átt frábæra fyrirmynd í töfrum, því okkur langar öllum að geta gert ótrúlega hluti.�??
�?á sagði Einar Mikael að hægt sé að fylgjast með þeim á facebooksíðu Töfrahetjanna.
https://www.facebook.com/tofrabrogd

Nýjustu fréttir

Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.