Karlalið ÍBV leikur í dag, mánudag í Olísdeild karla en liðið tekur á móti HK í Eyjum og verður leikið á frekar óvenjulegum leiktíma, eða klukkan 17:00. Helgast það af því að í kvöld er landsleikur í fótbolta þar sem Ísland mætir Hollandi og því er um að gera að skella sér á handboltaleik og fylgjast með ÍBV vinna HK, hlamma sér svo í sófann og fylgjast með Íslandi leggja Hollendingana að velli.
Eyjamenn hafa verið að finna fjölina eftir slaka byrjun í Íslandsmótinu þar sem ÍBV tapaði tveimur leikjum og gerði eitt jafntefli. Síðan þá hefur liðið unnið Akureyri á útivelli og Stjörnuna á heimavelli og því spurning hvort þriðji sigurleikurinn í röð líti dagsins ljós í kvöld. Leiknum var frestað á sínum tíma en með sigri getur ÍBV lyft sér upp í 2. til 5. sæti. ÍBV situr sem stendur í 7. sæti með 5 stig eftir 5 leiki. Nýliðar í Aftureldingu eru í efsta sæti með 12 stig eftir 6 leiki, ÍR er í 2. sæti með 8 stig eftir 6 leiki og FH og Valur eru með 7 stig, bæði eftir sex leiki. HK er hins vegar í 9. sæti með 2 stig, einn sigur og fjögur töp.
Rétt er að ítreka að leikur ÍBV og HK hefst klukkan 17:00.