Skagamaðurinn Jóhannes Harðarson er næsti þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu. Jóhannes hefur undanfarin ár verið erlendis, bæði verið atvinnumaður í knattspyrnu og síðan þjálfari. Jóhannes var þjálfari norska C-deildarliðsins Floy en hann skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV. Jóhannes mun búa í Eyjum ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu og þremur dætrum.
�??Með ráðningu Jóhannesar er lagt af stað í þriggja ára verkefni sem miðar að því að festa ÍBV í sessi sem Pepsídeildarlið og byggja upp lið sem hefur það markmið að ná betri árangri en undanfarin ár. Einnig mun Jóhannes koma að mótun yngri leikmanna félagsins í góðu samstarfi við þá þjálfara sem starfa hjá félaginu. Markmið beggja, félagsins og Jóhannesar, er að byggja upp lið sem leikur skemmtilega knattspyrnu,byggir á þeirri Eyjastemmingu sem lið ÍBV á að byggja á, og síðast en ekki síst að efla yngri leikmenn liðsin,�?? segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.
�??Jóhannes er vel kunnur sem einn af okkar betri knattspyrnumönnum áður en hann snéri sér að þjálfun. Jóhannes lék allan sinn feril hérlendis með Skagamönnum og varð fljótt einn af lykilleikmönnum þess liðs. Hann lék með liði Skagamanna frá árinu 1995-2000 og varð m.a. Íslandsmeistari með Skagaliðinu á sínu fyrsta ári. Hann varð svo tvöfaldur meistari með liðinu árið 1996 eftir tvo hreina úrslitaleiki, annars vegar gegn KR í deildinni, sigur 4-1, og svo gegn ÍBV í bikarkeppninni, sigur 2-1. Hann varð svo aftur bikarmeistari með liðinu árið 2000 eftir 2-1 sigur á ÍBV. Eftir tímabilið árið 2000 hélt Jóhannes í atvinnumennsku til Hollands og lék þar árin 2001-2004 með liðum MVV Maastricht og Groningen. �?aðan hélt hann svo til Noregs og lék með liði Start árin 2004-2009 þar til hann snéri sér að þjálfun og tók þá við liði Fløy í 3. efstu deild í Noregi. Jóhannes �?ór hefur nú þjálfað lið Fløy sl. 5 ár og skilar þar góðu búi. Jóhannes á að baki leiki með öllum landsliðum Íslands og þar af 2 A-landsleiki, og voru það báðir sigurleikir gegn Suður-Afríku og Möltu. Jóhannes hóf hins vegar sinn landsliðsferil með U-16 hér í Vestmannaeyjum á Norðurlandamótinu árið 1991.�??
Í tilkynningunni segir að félagið vonist til að stuðningsmenn ÍBV, nær og fjær, fylki sér á bak við nýjan þjálfara, leikmenn og stjórn knattspyrnunnar í að styðja við verkefnið að festa ÍBV liðið í sessi sem Pepsídeildarlið.
Við undirritunina kom jafnframt fram að ekki væri búið að ganga frá ráðningu aðstoðarþjálfara.