Aðfaranótt mánudagsins 27. október hefst verkfall lækna ef ekki verður samið fyrir þann tíma. Verkfallið stendur í tvo sólarhringa og lýkur því á miðnætti þriðjudagsins 28. október. Læknar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum munu leggja niður vinnu eins og annarsstaðar en í tilkynningu á heimasíðu heilbrigðisstofnunarinnar er ítrekað að á verkfallsdögum sé skylt samkvæmt lögum að veita nauðsynlegustu heilbrigðisþjónustu, sem að mati Læknafélags Íslands er sambærileg læknisþjónustu sem veitt er um helgar og á hátíðisdögum. �?að þýðir að tímabókanir hjá lækni á heilsugæslu og göngudeildum fellur niður á meðan verkfalli stendur. �?ó er tekið við bókunum á verkfallsdögunum, ef samið verður en ef ekki, falla tímarnir niður.
�??Íbúum er bent á að fylgjast með því að morgni verkfallsdaga hvort verkfall sé skollið á og munu þá bókuð viðtöl falla niður. Ítrekað er að nauðsynleg bráðaþjónusta lækna er til staða á HSU komi til verkfalls lækna. Íbúar í heilbrigðisumdæmi Suðurlands eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu stofnunar HSU um hver áhrif yfirvofandi verkfalls munu verða á þjónustu lækna á starfstöðvum stofnunarinnar,�?? segir í tilkynningu á heimasíðu heilbrigiðisstofnunarinnar sem Herdís Gunnarsdóttir, nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands skrifar undir.
Læknar hafa svo aftur boðað verkfallsaðgerðir frá aðfaranótt mánudagsins 17. nóvember til miðnættis þriðjudaginn 18. nóvember og frá aðfaranótt mánudagsins 8. desember til miðnættist þriðjudaginn 9. desember.