Gengur sáttur frá borði eftir 15 ára starf
�?lafur Elísson, sparisjóðsstjóri, hefur sagt starfi sínu lausu. �?etta staðfesti hann í samtali við Eyjafréttir. �?lafur hefur starfað sem sparisjóðsstjóri í 15 ár, verið stofnfjáreigandi síðan 1982 og hefur því verið viðloðandi Sparisjóðinn í rúm 30 ár. �?lafur lagði fram uppsögn til stjórnar í lok síðustu viku og tilkynnti starfsmönnum sjóðsins þetta í tölvupósti og á fundi í byrjun vikunnar en ekki liggur endanlega fyrir hvenær starfslok verða.
�??Að starfa sem sparisjóðsstjóri hefur verið viðburðaríkur og að mestu ánægjulegur tími. Nú er komið að kaflaskilum en það sem eftir stendur er ánægjulegt samstarf við gott fólk sem hefur starfað og starfar enn í Sparisjóði Vestmannaeyja,�?? sagði �?lafur í stuttu samtali við Eyjafréttir en hann segist ganga sáttur frá borði.
Eins og alkunna er, hefur töluvert gefið á bátinn síðustu ár í rekstri sparisjóðanna og hefur þeim fækkað jafnt og þétt. Ekki eru svo mörg ár síðan sparisjóðirnir voru á annan tug hringinn í kringum landið. Af þeim sjö sem nú eru starfandi, eru tveir í meirihlutaeigu ríkisins, Sparisjóður Norðurlands og Sparisjóður Vestmannaeyja auk þess sem Bankasýslan stýrir tæplega 50% hlut í Sparisjóði Norðfjarðar og einn er í eigu eins af stóru bönkunum. Unnið hefur verið að endurskipulagningu í Sparisjóðnum en rekstrarleg staða sparisjóðanna hefur verið erfið eftir bankahrun. Hugmyndir um frekari sameiningar sparisjóðanna hafa verið í umræðunni.

Nýjustu fréttir

Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.