Neyðarástand ríkir nú í Noregi vegna mikilla rigninga undanfarið. Ástandið í bænum Odda er slæmt en áin Opo rennur í gegnum bæinn og hefur hrifið nokkur hús með sér í vatnavöxtunum. Enginn hefur þó farist í hamförunum og enginn slasast heldur. Eyjakonan Ásta Steinunn Ástþórsdóttir er búsett í Odda, sem er fimm þúsund manna bær en þar hefur hún búið síðustu tvö ár.
�??Áin er búin að taka fimm íbúðarhús og fleiri hús eru í hættu. Áin grefur undan húsunum sem gefa svo eftir og tætast eiginlega bara í tannstöngla. Um það bil 75 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín,�?? sagði Ásta Steinunn í samtali við Eyjafréttir.
�??Maður er í hálfgerðu sjokki hérna. Við erum ekki í hættu, húsið okkar er langt uppi í fjallshlíðinni, fjarri ánni og mér skilst að ekki sé hætta á aurskriðu hérna. En auðvitað getur maður aldrei verið 100% öruggur. �?að hafa fallið tvær litlar aurskriður ofarlega í bænum en menn hafa meiri áhyggjur af ánni. �?að hefur rignt mjög mikið undanfarna daga og það hefur aldrei mælst svona mikið vatn í ánni. �?að leit út fyrir í morgun að það væri að stytta upp en því miður er komin grenjandi rigning aftur,�?? sagði Ásta Steinunn í viðtali við Eyjafréttir í morgun.
Hún segir jafnframt að Norðmenn séu ótrúlega rólegir yfir hamförunum. �??Norðmenn eru svo krúttlegir, taka öllu með stóískri ró en eru að sama skapi ótrúlega skynsamir og fljótir að taka mikilvægar ákvarðanir eins og að rýma hús. En hér halda allir áfram, fara í vinnu og börnin í skóla.�??