Ferðasaga Gunnars og �?skars - �?riðji og síðasti hluti
Jæja þá yfirgaf hann �?skar minn svæðið í fyrradag. Hann þurfti því miður frá að hverfa vegna veikinda sem orsökuðust af hitabeltisloftslaginu. Víkingar eins og hann þrífast einfaldlega best í 5 metra ölduhæð við Landeyjahöfn og 30 metrum á Stórhöfða. �?g verð því einn næstu 10 dagana eða svo. �?g reikna nú ekki með að það verði neitt tiltökumál. Mér finnst mikilvægt að kunna að vera einn, því ef ég nenni ekki að vera með sjálfum mér, hver annar ætti þá að nenna því?
En allavega, ég ætlaði ekki að þreyta ykkur með heimspekilegum pælingum um lífið og tilveruna. �?g ætla skauta yfir það sem drifið hefur á daga okkar piltanna undanfarið.
Eins og ég hef áður komið inn á kunnum við �?skar best við okkur í baráttu við náttúruöflin (�?skar hindúi vill meina að hann sé Bear Grylls endurholdgaður, sel það ekki dýrara en ég keypti það), hvort sem það er á kajak, í helli eða uppi á fjallstindi í alíslenskum stinningskalda. Til að svala þessari könnunarþörf ókum við töluvert inn í landið þar sem við hituðum upp með útsýnisrúnti um ægifögur skógi vaxin fjöll Kerala héraðsins. �?aðan yfirgáfum við sjálfrennireiðina og héldum á fæti í gegnum frumskóginn. Gengið var eftir mjóum slóða fram hjá risavöxnum trjám og öðrum framandi gróðri (og köngulóm, af hverju þurfa alltaf að vera köngulær), meðfram kristaltærri lindá sem við þurftum að vaða til að komast á endanum að einum fallegasta fossi sem ég hef á ævinni séð. Hann er staðsettur innst í snarbröttum dal þar sem hann fellur af þremur stöllum niður í lygnan hyl, og allt heila klabbið umlukið þykkum og hávöxnum trjágróðri allt niður að bökkum. Hvílík fegurð! Upp í hugann kemur pæling úr The Fault in Our Stars eftir John Green þar sem segir að það sem skilji okkur frá dýrunum sé að við getum dáðst að tilvist alheimsins. Okei kannski dálítið háfleygt, en á augnablikum sem þessum er lífið samt ansi yndislegt.
Okkur til armæðu var okkur harðbannað af leiðsögumanninum að synda í hylnum af því er virtist af öryggisástæðum. Enskan hans var ekki nógu góð til að skilja að við værum íslenskir víkingar sem hefðu sko synt í stærri og straumharðari pollum en þessum. Leiðir skildu sem betur fer við leiðsögumanninn þegar leiðin til baka var u.þ.b. hálfnuð. Við vorum þá ekki lengi að finna lygnan hluta árinnar til að synda í sem við og gerðum, eiginlega bara til að geta sagt að við hefðum gert það. OMG við erum svo miklir rebels.
Ýmislegt fleira hefur átt sér stað sem ég ætla ekki að fara djúpt í, en ég ætla að stikla á stóru:
Kýr eru háheilagar hér í landi, tengist hindúismanum sem 80% þjóðarinnar aðhyllast. Sökum þess mega kýr gera það sem þeim sýnist, t.a.m. bíta gras í vegkantinum með allan skrokkinn inni í á akbrautinni svo að bílar þurfa að taka stóran sveig yfir á gangstæðan vegarhelming (!) til að forðast árekstur. Umferðarmenningin hér er ekki fyrir hjartveika.
Við fórum í sundkeppni sem fólst í því hvor okkar þyrði að synda lengra út á sjó. Í stuttu máli sagt choke’uðum við algjörlega eins og sagt er á slæmri íslensku og sömdum um jafntefli eftir skitna 100-200 metra. Eitthvað sat víst í okkur að sörfkennarinn okkar sagði að tveir hefðu drukknað úti fyrir ströndinni í fyrra…
Flækingshundar eru hér á hverju strái, flóabitnir, grindhoraðir og mannfælnir eftir barsmíðar. �?skar dýravinur átti í miklum erfiðleikum með að horfa upp á dýrin í svo slæmu ástandi. Hann þurfti að hafa sig allan við að taka þá ekki alla með tölu heim til hennar Hildar Zoega.
�?eir sem þekkja �?skar vita að hann lætur gæðin en ekki magnið ráða þegar hann talar (eitthvað sem sum okkar mættu tileinka sér). Oftar en ekki þegar hann tjáir sig eru ummælin algjörir gullmolar (t.d. þvottavélarsagan). �?g var s.s. eitt kvöldið að blaðra um að þó maður hafi lesið um og séð myndir af fátækrahverfum og frumskógum þá sé allt annað að upplifa það með eigin skilningarvitum. Alltaf miklar og misgáfulegar spökuleringar hér á bæ í anda Heimis Snitzels (“Harrý ég var að spökulera”). �?á lét �?skar þessi fleygu orð falla: “Indiana Jones sagði: ‘If you want to explore, then don’t do it in books, do it yourself.'” MIND BLOWN. Er hægt að hugsa sér betri ferðafélaga?
�?ar sem ég er í meiri rólegheitum svona einn og færra frásagnarvert drífur á daga mína reikna ég með að þetta verði síðasti pistillinn. �?g vil þakka þér fyrir lesturinn.
Namaste

Nýjustu fréttir

Skákmeistarinn krýndur á sunnudag
Árshátíð FÍV haldin með pompi og prakt
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.