Kvennalið ÍBV heldur áfram á sigurbraut í Olísdeildinni en liðið lagði í dag Fylki að velli í Árbænum. Lokatölur urðu 29:33 en staðan í hálfleik var 14:19. ÍBV hefur aðeins tapað einum leik í deildinni, hefur unnið sjö af átta. ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Grótta sem er í öðru sæti en bæði lið eru með 14 stig. Fram er hins vegar í efsta sætinu með 16 stig. Vera Lopes var markahæst með níu mörk en Kristrún Hlynsdóttir skoraði sjö.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 9, Kristrún �?sk Hlynsdóttir 7, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 6, Telma Amado 6, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Drífa �?orvalsdóttir 2.