Brynjar Gauti á leið til Silkeborg
Allt stefnir í að Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaðurinn sterki í ÍBV, sé á leiðinni frá félaginu. Á mbl.is er sagt frá því að Brynjar Gauti sé á leið til Danmerkur þar sem hann mun æfa og spila æfingaleik með danska úrvalsdeildarliðinu Silkeborg. �??Maður hafði heyrt af áhuga víða á norður­lönd­un­um en Sil­ke­borg kom inn í mynd­ina eft­ir leik­ina með U21-landsliðinu gegn Dön­um,�?? sagði Brynj­ar Gauti í samtali við mbl.is. �??�?g tel mig full­kom­lega klár­an til þess að fara út og það er rök­rétt skref á mín­um ferli, til að halda áfram að bæta mig og ná lengra.�?? sagði Brynj­ar Gauti.
Brynjar Gauti Guðjónsson er 22 ára gamall og hefur leikið með ÍBV síðan sumarið 2011 en hann kom til liðsins frá Víkingi �?lafsvík. Brynjar hefur verið lykilmaður í liði ÍBV og lék 24 leiki í deild og bikar síðasta sumar og skoraði í þeim þrjú mörk. Allt stefnir í að varnarlína ÍBV verði mikið breytt næsta sumar. �?annig er óvíst hvenær Matt Garner verði leikfær á ný eftir að hafa fótbrotnað í haust en ólíklegt er að hann verði tilbúinn í byrjun tímabils. �?á fór Eiður Aron Sigurbjörnsson frá ÍBV á miðju sumri og nú er Brynjar Gauti á leið frá félaginu. Jökull Elísabetarson var lengi vel í hægri bakverðinum en hann er nú farinn frá félaginu.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.