Staðsetning hafnarinnar sú besta sem völ er á við suðurströnd Íslands
Í bréfi Guðmundar �?.B. �?lafssonar sem birtist á vefsíðu Eyjafrétta sl. fimmtudag er því haldið fram að forgangsatriði sé að bæta Landeyjahöfn en ekki að bæta samgöngur til Vestmannaeyja. Vegagerðin og forverar hennar hafa í meira en í öld komið að hafnagerð á Íslandi og séð um endurbætur á öllum þeim höfnum sem vísað er til í greininni. �?að hefur verið gert með rannsóknum, útreikningum og tilraunum.
Eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun og áður en hún var byggð fóru fram miklar rannsóknir og útreikningar á því hvort hún væri á réttum stað, garðar væru nógu langir, formið heppilegt o.s.frv. Fengnir hafa verið erlendir og innlendir ráðgjafar að rannsóknunum. Höfnin hefur verið kynnt erlendis og fengin fram umræða um mögulegar lausnir og svona mætti lengi telja. Margvíslegar breytingar á höfninni hafa verið prófaðar í reiknilíkönum. Niðurstaðan er ávalt sú sama að staðsetning hafnarinnar, form hennar o.s.frv. og þá m.t.t. sandburðar og siglinga sé það besta sem völ er á við suðurströnd Íslands.
�?eir erfiðleikar sem Herjólfur á við að glíma fyrir utan höfnina verða ekki leystir með breytingum á höfninni heldur aðeins með ferju sem ristir minna, heldur stefnu í ölduróti og er styttri en Herjólfur. Í stuttu máli ferju sem hentar aðstæðum fyrir utan Landeyjahöfn.
�?egar ákveðið var að byggja Landeyjahöfn þá fólst það í höfn og ferju. Ferju sem gæti siglt þangað yfir vetrartímann. Sú ferja þyrfti að vera minni en Herjólfur, það var ekki háð stærð hafnarinnar heldur aðstæðunum við Bakkafjöru. Jafnvel þótt höfnin væri stærri, garðar lengri, þá gæti ferjan ekki verið stærri því öldurótinu og dýpinu fyrir utan Landeyjahöfn verður ekki breytt. Sandburðurinn sér til þess. �?ví eru allar hugmyndir um stærra skip og stærri höfn andvana fæddar. Enda gerðu upphaflegar áætlanir ráð fyrir að nýja ferjan yrði aðeins 60 metra löng og grunnristuð. �?annig var ferjan kynnt.
Ráðgjafi innanríkisráðuneytisins og hönnuðurinn Polarkonsult AS sem hafa mikla reynslu af hönnun skipa fullyrtu á fundinum þann 17. október sl. að unnt er að hanna ferju sem ræður við að sigla í ölduróti á grunnsævi eins og hönnunarforsendur gerðu ráð fyrir. Reynslan af Baldri, sem er aflminni ferja en Herjólfur, staðfestir þetta.
Til að bæta samgöngur til Eyja frá því sem nú er þá þarf ferju sem hentar aðstæðum fyrir utan Landeyjahöfn.
Hvað varðar spurningarnar um endurbætur á Herjólfi þá er því til að svara að það var lagt til af sérfræðingi að endurbæta peruna, gera stefnið rúnnað, lengja veltukjölinn og setja skutskegg á Herjólf. Efasemdir komu upp um sumar þessar tillögur og því var ákveðið að endurbæta Herjólf með því að rúna stefnið og lengja veltukjölinn en bíða með annað.

Nýjustu fréttir

Kíkt inn á kosningavökur framboðanna
Lokatölur: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta
Fimm menn hjá D-lista samkvæmt fyrstu tölum
Kíkt í kosningakaffi framboðanna – myndir
Herjólfur stefnir á hefðbundna sjö ferða áætlun frá mánudegi
ÍBV mætir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Talning hefst upp úr klukkan 22 – fyrstu tölur um hálf ellefu
ÍBV stelpurnar unnu Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.