Hin bráðefnilega handknattleikskona, Díana Dögg Magnúsdóttir, 17 ára, hefur verið valin í A-landsliðið sem tekur þátt í forkeppni HM og spilar gegn Ítalíu og Makedóníu. �?etta er í fyrsta sinn sem Díana Dögg er í landsliðshópnum en hún hefur leikið sérstaklega vel með ÍBV í vetur, og einnig síðasta vetur og er vel að því komin að vera valin í landsliðið. Díana Dögg er eini leikmaður ÍBV sem er í 22 manna landsliðshópnum.
Liðið heldur af stað mánudaginn 24. nóvember til Kaupmannahafnar og æfir þar og gistir í eina nótt áður en liðið leggur af stað til Ítalíu á þriðjudeginum. Liðið mun mæta Ítölum í Chieti fimmtudaginn 27. nóvember kl 17.00. Sunnudaginn 30. nóvember kl 16.00 mæta svo Ítalir í Laugardalshöllina í síðari leik liðanna. Ísland mætir svo Makedóníu miðvikudaginn 3. desember kl 19.30 í Laugardalshöll. Daginn eftir heldur svo íslenska liðið af stað til Makedóníu þar sem síðari leikur liðanna fer fram í Skopje laugardaginn 6. desember kl 16.45.
Hópurinn er eftirfarandi:
Markmenn:
Florentina Stanciu, Stjarnan
Guðrún �?sk Maríasdóttir, FH
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, Fylkir
Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir, SK Aarhus
Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Birna Berg Haraldsdóttir, Sävehof
Bryndís Elín Halldórsdóttir, Valur
Brynja Magnúsdóttir, Flint Tönsberg
Díana Dögg Magnúsdóttir, ÍBV
Hildigunnur Einarsdóttir, Tertnes
Hildur �?orgeirsdóttir, Koblenz
Hrafnhildur Hanna �?rastardóttir, Selfoss
Karen Helga Díönudóttir, Haukar
Karen Knútsdóttir, Nice
Ramune Pekarskyte, Le Havre
Rut Jónsdóttir, Randers
Steinunn Björndóttir, Fram
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Sunna Jónsdóttir, BK Heid
Unnur �?marsdóttir, Skrim
�?órey Rósa Stefánsdóttir, Våg Vipers
�?órey Ásgeirsdóttir, Kongsvinger