Fundu mikið magn fíkniefna

Í gærkveldi gerði lögreglan í Vestmannaeyjum húsleit í einu húsi í bænum vegna gruns um að þar væru aðilar með fíkniefni. Við leit í húsinu fannst nokkuð magn af maríhúana eða um 83 grömm. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahundsins Lunu og merkti hún við stað í íbúðinni þar sem mestur hluti efnanna fannst. Tveir menn voru því handteknir, annar þeirra er húsráðandi. Hann neitaði að eiga efnin eða vita eitthvað um tilurð þeirra í húsinu. Hinn aðilinn viðurkenndi að eiga hluta af efninu en sagði það til eigin nota. �?eir voru báðir færðir í fangageymslu og gistu þar í nótt vegna rannsóknar á málinu. �?eir hafa báðir komið við sögu vegna fíkniefnamála.

Nýjustu fréttir

ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.