Slæm veðurspá og hækkandi alda
Veðurstofan spáir slæmu veðri þegar líða fer á daginn. Ekki er þó um nein aftök að ræða í Eyjum. Spá Veðurstofunnar segir: Gengur í suðaustan 18-25 m/s um og uppúr hádegi með rigningu, talsverð eða mikil úrkoma S-til á landinu. Hiti 2 til 9 stig. Snýst í suðvestan 20-30 undir kvöld, hvassast SV-lands í kvöld, en á N-verðu landinu frá miðnætti og fram á morgun. Kólnandi í kvöld með slydduéljum og síðar éljum á V-helmingi landsins. Dregur hægt úr vindstyrk í fyrramálið, suðvestan 13-18 síðdegis á morgun og áfram él, en úrkomulítið NA-til. Hiti um eða undir frostmarki.
Í tilkynningu frá Herjólfi segir að Herjólfur hafi farið til �?orlákshafnar í morgunþví en ófært er til Landeyjahafnar. �?ar er nú rúmlega 3ja metra ölduhæð og fer hækkandi. Samkvæmt ölduspá á sigling.is verður hún komin í rúma 7 metra við Landeyjahöfn á miðnætti, og 9 metrar við Surtsey en fer síðan lækkandi. �?á segir heimsíðu Herjólfs að óvissa sé um siglingar skipsins síðar í dag og á morgun vegna mikillar ölduhæðar. Ekki er annað sjá á ölduspám en ölduhæð verði mikil svo langt sem spáin nær.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.