Herjólfur fór frá Vestmannaeyjum í morgun og var ferðinni heitið til �?orlákshafnar, brottför þaðan aftur 11:45.
�?að er gert þrátt fyrir að aldan utan við Landeyjahöfn sé kominn undir 2 m. �?vissa er með dýpi þar og því ekki forsvaranlegt að sigla farþegaferju þangað í óvissu.
Skv. upplýsingum frá Vegagerðinni í gær á Lóðsinn í Vestmannaeyjum að fara til Landeyjahafnar og mæla dýpið um leið aðstæður til mælinga væru orðnar mögulegar og. �?egar dýpismæling liggur fyrir mun skipstjóri Herjólfs meta aðstæður.
Tveir möguleikar eru í stöðunni seinna í dag. Annars vegar að sigla til Landeyjahafnar 17:30 og það mun verða gert ef aðstæður leyfa eða hins vegar sigla aftur til �?orlákhafnar 15:30. Nánar um það þegar dýpismæling liggur fyrir. Á heimasíðu Herjólfs segir vonandi sé skilningur á þessari stöðu �??og erum jafn áhugasöm fyrir siglingum til Landeyjahafnar og flestir okkar farþegar en náttúrulegar aðstæður stjórna því fyrst og fremst.�??