Forsenda þess að ný ferja í stað Herjólfs ráði við fyrirliggjandi flutningsþörf er að hún geti siglt fleiri ferðir en núverandi Herjólfur vegna kostnaðar og óhagræðis við losun og lestun. Gangi áætlanir eftir eykst dagleg flutningsgeta með bíla um 71% og hægt verður að flytja 61% fleiri farþega en nú.
�?etta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem lagt var fram á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi um nýja Vestmannaeyjaferju. �?ar segir að ganghraði verði sá sami og þjónusta á siglingum í Landeyjahöfn sambærileg við það sem gerist í dag. Hin nýja ferja verður einnig búin til siglinga í �?orlákshöfn og verða í henni milli 30 og 40 kojur. Sérstaka athygli vekur að áætlaður rekstrarkostnaður er um 400 milljónum króna lægri en á núverandi skipi.
Bæjarráð tók undir þær forsendur sem fram koma í minnisblaðinu en lýsir áhyggjum af því að en hafi ekki verið tryggð fjármögnun á þessu mikilvæga verkefni.