Myndband af Sigurði VE í ólgusjó
Heimsigling Sigurðar VE eftir viðgerð í Noregi gengur hægt vegna veðurs. Í morgun var skipið um 40 sjómílur suðvestur af Suðurey í Færeyjum. �?orbjörn Víglundsson skipverji segir nú að Sigurður sé um 90 sjómílur vestsuðvestur af Færeyjum. Hann segir í samtali við Eyjafréttir.is að skipið hafi ekki komist nema tæpar 50 sjómílur frá því í morgun, á 12 klukkustundum hafi Sigurður siglt jafn langt og hægt sé að sigla skipinu á þremur klukkustundum við góð skilyrði.
�??Veðrið versnaði í dag og er með versta móti núna. Við förum ekki nema um 4 hnúta á klukkustund. �?að má segja að við séum bara í fyrsta gír,�?? segir �?orbjörn. Að svo komnu máli er erfitt að segja til um heimkomu skipsins en stefnt er að því að ná til hafnar í Eyjum síðar í vikunni.
�?orbjörn veitti Eyjafréttum leyfi til að birta meðfylgjandi myndband sem hann birti á Facebook síðu sinni síðdegis með eftirfarandi texta: �??Enn blæs hann og fer ekki undir 22 metra á sekúndu og yfir 30 metra á sekúndu í hviðum. Haugasjór og samkvæmt veðurspá er hann ekkert að fara að lægja.�??

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.